6.11.2008 | 22:10
Umhugsunarvert og trúlega rétt ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.11.2008 | 19:04
Leikskólinn Sólvellir á Seyðisfirði.
Hér á Seyðisfirði höfum við afar góðan og farsælan leikskóla. Þar hefur lengi verið mikið mannval og hærra hlutfall af fagmenntuðu fólki. Þess vegna hefur starf skólans lengi verið annað og meira en geymslustaður fyrir börnin.
Leikskólakonurnar hafa farið víða og kynnt sér starf leikskóla annars staðar og byggt upp uppeldisstofnun sem ber virðingu fyrir barninu og starf leikskólans gefur því tækifæri til að þroskast í gegnum leik. Það hefur verið skoðun fræðsluyfirvalda að æskilegt sé að öll börn á leikskólaaldri fái tækifæri til að vera í leikskóla, án tillits til efnahags foreldra.
Brú milli skólastiga er verkefni sem leikskólinn og skólinn hafa byggt upp saman og er markmið þess að aðlaga börnin að starfinu í grunnskólanum. Það er skoðun mín og margs annars félagshyggjufólks að landsmenn búi við jafnrétti til náms. Skólagjöld á framhaldsskólastigi og ég tala nú ekki um grunnskólastigi séu því ekki réttlætanleg. Þess vegna er eðlilegt að sá hluti leikskólastarfs sem er aðfari grunnskólans sé gjaldfrjáls.
Í grunnskólanum hafa orðið miklar breytingar á síðustu árum. Er nám nemendanna einstaklingsmiðað og eru 3 árgangur í hverjum nemendahópi.
Úr uppeldisstefnu Leikskólans Sólvalla:
LEIKUR er iðja barna rétt eins og vinna er iðja fullorðinna. Í gegnum leik læra börn, þroska og þjálfa mikilvæga þætti félagsfærni eins og samskipti, samvinnu, traust og að fylgja reglum. Þetta eru nauðsynlegir færniþættir m.a. til að börn geti eignast og haldið vinum, tekið þátt í íþróttum og tómstundum og liðið vel í skólastarfi jafnt sem daglegu lífi.
Börnin okkar eru getumiklir einstaklingar sem eru færir um að taka sjálfstæðar ákvarðanir og við verðum að gefa þeim tíma og skapa þeim aðstæður til að gera hlutina sjálf, á eigin forsendum og hraða og hætta að grípa fram fyrir hendurnar á þeim.
Börn hafa þörf fyrir ást, öryggi, hlýju og viðurkenningu hins fullorðna, því þarf leikskólinn okkar að vera öruggur, hlýlegur, skemmtilegur og örvandi vinnustaður sem vekur gleði og forvitni barnanna ásamt því að efla frumkvæði, sjálfstæði og jákvæða sjálfsmynd.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2008 | 14:54
Mistök hjá Þrótti? Skúli Jónsson í Þrótt!
Samkvæmt frétt á vefnum Fotbolti.net er Skúli Jónsson á leið í Þrótt. Þetta er ábyggilega í fyrsta sinn sem lið í efstu deild fær til liðs við sig 46 ára gamlan mann. Ég man eftir að Mark Hateley, Tore Andre Flo og Ian Rush voru rétt um fertugt þegar þeir gengu til liðs við Leeds.
En sem sagt Skúli Jóns er é leið í Þrótt. Mér datt raunar í hug að þeir hefðu ætlað að fá Gauta son hans sem er mjög efnilegur í boltanum og orðið eoinhver mistök a la Georg Bjarnfreðarson.
Skúli Jónsson í Þrótt (Staðfest)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2008 | 23:27
Hvað getum við gert?
Ég held að við Íslendingar eigum að fara að snúa okkur að því að reyna að huga að því hvað við getum gert.
Það er fólk í því að reyna að koma fjármálakerfinu í virkni og einhverjir eru að reyna að halda atvinnulífinu í gangi og svo framvegis.
Mér finnst hins vegar almenn umræða í fjölmiðlum og útifundir og þetta vera ofsalega mikið neikvætt og þokukennt. Þessi umræða fjallar mest um það sem við fáum ekki nógu mikið að vita um, til að geta dæmt um. Það er pirrandi, en mér finnst umræðan stoppa þarna og við komst of lítið áfram.
Hvað getum við, almenningur gert til að hjálpa og láta gott af okkur leiða?
Við getum til dæmis reynt að lifa hófsömu lífi, verið jákvæð og ekki er sniðugt að gera til dæmis börnin okkar of áhyggjufull. Ég held líka að við ættum að reyna að versla íslenskt og verja þannig störf í okkar samfélagi.
Fyrirtækin okkar þurfa á okkur að halda, fremur en nokkurn tíma fyrr.
Ef til dæmis allir fara að spara og segja upp Stöð 2 og hætta að drekka kók, af því að það er óþarfi óhollt og dýrt, þá þýðir það að margir missa vinnuna.
En í kreppu gerast einmitt svona hlutir. Við höfum minna af aurum og neitum okkur um munað, eða það sem við getum helst verið án.
Mér finnst að stjórnvöld, sveitarstjórnir og aðrir eigi að gera sérstakt átak í atvinnuþróun og leita að atvinnutækifærum um allt land.
Það er siðferðisleg skylda okkar að byggja aftur upp samfélag sem er að ganga í gegnum erfiðar breytingar.
Verktakastarfsemi og byggingariðnaður til dæmis Er unnt að finna ný verkefni handa þeim? Það er slæmt ef hið opinbera slær af fyrirhugaðar framkvæmdir. Það er dýrt fyrir samfélagið að hafa fólk atvinnulaust.
Þetta eru svona mánudagshugleiðingar hjá mér að þessu sinni.
Kveðjur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.10.2008 | 11:43
Athyglisvert.
Takið þátt í könnun um bestu vinaþjóð Íslands hér á síðunni.
Gagnrýnir hin Norðurlöndin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.10.2008 | 20:57
18 prósent þangað til?
Stjórn IMF fjallar um Ísland 5. nóvember | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
28.10.2008 | 22:18
Mælirinn fullur á Seyðisfirði!
Nú er mælirinn fullur á Seyðisfirði.
Það er búið að rústa fjárhag íslenska þjóðabúsins og skuldsetja hvert einasta ófætt barn landsins um milljónir. Við tökum ekki þátt í þessu.
Það er búið að sukka og fjárfesta og byggja fyrir þessa aura. Þetta sukk og framkvæmdir voru einhvers staðar annarsstaðar á landinu í gangi en hér í bæ.
Við vildum hafa okkar að segja og vildum breyta klukkunni til samræmis við Evrópu. Ekki var hlustað á það. Við búum við betri samgöngur til annara landa en Íslands og höfum beðið um samgöngubætur. Ekki hlustað á það.
Við höfum fengið skerta bankaþjónustu og búið við hana í einhver ár. Við neitum því að borga fyrir banka sukkið.
Fasteignir hér í bæ hafa verið gerðar verðlausar af lánastofnunum og stjórnvöldum og útaustur á lansfé er ekki okkar mál.
Það er því ljóst að mælirinn er að verða fullur hjá Seyðfirðingum og allar líkur á að bærinn lýsi yfir sjálfstæði, Seðlabanka og þar af leiðandi skuldlaust samfélag, þar sem manngildi er metið. Gjaldfrjáls leikskóli þykir sjálfsagt markmið hér í bæ. Skólinn okkar á að laga sig að þörfum nemenda, en ekki öfugt.
Hver vill ekki glaður búa í svona samfélagi?
Enn eru nokkur hús óseld, en fer fækkandi.
Í dag voru færeyingar að bjóða okkur stóran hluta af varasjóð sínum að láni. Hvernig getum við tekið við aurum frá þeim? Þeir eru "lille bror"!
Og hvað á að gera við þessa peninga. Geyma þá í einhverjum kassa, þannig að við getum sagst hafa sérstakan gjaldmiðil áfram. Þessir peningar verða bara notaðir til að við getum í nokkur ár enn sóað fjármunum til að geta sagst vera enn með sjálfstæða mynt.
Er ekki komið nóg?
Þessi mynt og þessi háa verðbólga og þessir háu stýrivextir eru grunnurinn að óréttlæti og eymd í þessu góða landi.
Við Seyðfirðingar þurfum ekki sjálfstæða mynt. Bara sjálfstæða hugsun. Það er mikilvægara.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.10.2008 | 17:59
Prenthylki.is Nýtt umhverfisvænt fyrirtæki.
Það er alltaf gleðilegt þegar nýtt fyrirtæki hefur göngu sína á stað eins og Seyðisfirði.
Þetta fyrirtæki er nýtt hér í bæ, en á sér alllanga sögu fyrir sunnan, en er nú flutt hingað og byrjað starfsemi.
Fyrirtækið sér um að endurhlaða dufthylki fyrir prentara. Með því að láta prenthylki.is endurhlaða hylkið þitt spararðu þér fjármuni og þjóðarbúinu gjaldeyri. Einnig er starfsemin umhverfisvæn, og minnkar kostnað sveitarfélagsins við að urða úrgang.
Fyrirtækið tekur einnig á móti blekhylkjum til endurvinnslu og rennur ágóðinn af því verkefni til vinnustaðar aldraðra, sem sér um senda það til endurvinnslu.
Svo elskurnar; Ekki henda hylkinu. Talið frekar við prenthylki.is.
Að lokum vísa sem mér barst í tölvupósti:
Hugarvíl og harmur dvín,
er horfi ég á frúna.
Hún er eina eignin mín
sem ekki rýrnar núna.
Höfundur óþekktur.
Bloggar | Breytt 24.10.2008 kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.10.2008 | 21:39
Hálkuvarnir á Fjarðarheiði.
Í dag átti ég leið upp á Egilsstaði. Erindið var reyndar að láta skipta yfir á vetrardekk. Það þýðir ekkert annað en að vera á negldum snjódekkjum á Fjarðarheiði.
Ég var hress með það að Vegagerðin var búin að sanda á heiðinni þegar ég fór yfir klukkan 16.00.
Hins vegar hefur maður oft furðað sig á forgangsröðun þeirrar stofnunar.
Vegurinn um Fjarðarheiði er krókóttur og á nokkrum stöðum bæði slæmar beygjur og brekkur. Það fer illa saman í hálku eins og er oft á þessum vegi. Þess vegna er að furðulegt að Vegagerðin skuli sanda fyrst vegi á sléttunum á Héraði, áður en farið er í brekkurnar á heiðinni.
Vegir á Íslandi hafa verið metnir með tilliti til hversu hættulegir þeir eru. Þá eru atriði eins og brattar brekkur, vitlaus halli í beygjum, beygjur í bratta, hæð vega og meiri hætta á illviðrum af þeim sökum og margt fleira.
Ég hef heyrt að vegurinn um Fjarðarheiði sé hættulegasti vegur á Íslandi. Þess vega er óskiljanlegt að hálkuvörnum sé jafn illa sinnt og dæmin sanna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.10.2008 | 16:53
Transport í Nóvember.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Jón Halldór Guðmundsson
Spurt er
Tenglar
Seyðisfjörður
Seyðfirskir tenglar
- Heimasíða Seyðisfjarðarkaupstaðar
- Skaftfell menningarmiðstöð
- Huginn knattspyrnudeild
- Skálanes, náttúru og menningarsetur.
- Hótel Aldan Hótelið sem heillaði Dorrit
- Smyril Line Umboðsaðili ferunnar Norrönu
- Myndasíða Gumma Jóns
- Samfylkingin á Seyðisfirði Kjósum réttlæti
- Seyðisfjarðarskóli Flottur skóli!
- Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
- Gummi í Krabbesholm Guðmundur er í Krabbesholm lýðháskóla
- Þvottatækni Mjög athyglisvert fyrirtæki
Bloggvinir
- joningic
- fridabjarna
- gisgis
- arnith2
- egillrunar
- gbo
- gummigisla
- korntop
- fjardarheidi
- asgrimurhartmannsson
- fiskholl
- larahanna
- gudrunkatrin
- fleipur
- hallibjarna
- logieinars
- saxi
- mjollin
- hugs
- holmdish
- joelsson
- mosi
- lionsklubbur-seydisfjardar
- photo
- rifssaumur
- neistinn
- runirokk
- skagstrendingur
- arnthorhelgason
- emilkr
- nimbus
- gutti
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 134460
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar