Færsluflokkur: Bloggar

25 manna listinn í Time.

Gott að muna að blaðið Time tók saman 25 nafna lista með þeim aðilum sem bári helst ábyrgð á Hruninu. Ísland á einn mann á þeim lista. Það er einginn annar en Davíð Oddsson þáverandi seðlabankastjóri og fyrrum forsætisráðherra.
mbl.is Þakkaði Brown fyrir að bjarga Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um hagkvæmni og skattamál.

Að mestu leyti er skattkerfi okkar íslendinga skilvirkt, hagkvæmt og tiltölulega auðskilið.

Ég ætla ekki að hafa einkunnina réttlátt. Ástæður þess að ég geri það ekki eru nokkrar, til dæmis er ég á þeirri skoðun að hátekjuskattur eigi rétt á sér.  Ég tel einnig að meðan stimpilgjald er við lýði, sem er sérstakur skattur á skuldara öðrum fremur, þá eigi eignaskattur líka rétt á sér.

Þegar uppgjör á álagningu ársins liggur fyrir í kringum 1. ágúst á ári hverju, þá kemur í ljós hvort maður skuldar eða á inni.  Nú í ár eiga mjög margir inneign sem er greidd út og eiga svo að borga til baka oft í gegnum launagreiðendur sína.  Þessi hópur er mun stærri núna en áður hefur verið. Þessi óþarfa skriffinnska hlýtur að vera þjóðfélaginu dýr.

Til að laga þetta aftur þarf að gera tvennt:  Heimila það að barnabótum sé skuldajafnað upp á móti skattskuldum.  Heimila það að barnabótum, ofgreiddri staðgreiðslu og vaxtabótum sé skuldajafnað á móti ógjaldföllnum gjalddögum opinberra gjalda við álagningu. 

 


Gaman að sjá Leeds með knattspyrnusýningu í gærkvöld.

Leedsarar á Seyðisfirði buðu upp á tertu á Kaffi Láru og áhorfendur hrifust allir af flottum leik Leeds. 

Átta flökkusögur um hrunið leiðréttar.

Átta lífseigar flökkusögur um hrunið

Ýmislegt er á kreiki í umræðunni varðandi hrunið, sem margir taka sem gefnu, en þolir ekki gagnrýna skoðun.  Hér eru átta dæmi.

1. "Afskriftir skulda [útrásarvíkings X] lenda á almenningi."  Rangt, þær lenda á kröfuhöfum gömlu bankanna.  En í tilviki Landsbankans er Tryggingasjóður innstæðueigenda og síðan ríkissjóður meðal forgangskröfuhafa, þannig að þar má segja að tap gamla bankans sé tap almennings.  Svo er þó ekki í Glitni eða Kaupþingi  (nema óbeint í gegn um lífeyrissjóði og að einhverju leyti Seðlabanka).

2. "Krónan féll vegna þess að bankarnir og/eða eigendur þeirra tóku stöðu gegn henni."  Ekki rétt nema ef til vill að litlu leyti.  Krónan féll aðallega vegna þess að peningamálastefnan var vond, leyfði krónunni að styrkjast of mikið 2003-6 og síðan kom alþjóðlega fjármálakreppan sem olli flótta úr öllum áhættusömum fjárfestingum, þar á meðal vaxtamunarviðskiptum með krónu.  Sjá nánar í þessari bloggfærslu.

3. "Það er fullt af peningum í felum á Tortólu, það þarf bara að fara og sækja þá." Svo mikið er víst að það eru engir peningar á Tortólu, þar er varla banka að finna.  Hins vegar eiga fyrirtæki skráð á Bresku jómfrúreyjum (en stærsta eyjan heitir Tortóla) eflaust bankareikninga víða, bara ekki á eyjunum sjálfum.  En því miður var stærsti hluti efnahagsreikninga bankanna (og eignarhaldsfélaganna) bara loft, þ.e. skuldasúpur og ofurgíraðar spilaborgir.  Það loft hvarf jafnfljótt og það myndaðist.  Eitthvað smáræði er eflaust eftir, en ekki stóru fjárhæðirnar sem sumir virðast halda; þær töpuðust einfaldlega og urðu að engu.  Af lofti ertu kominn og að lofti skaltu aftur verða.

4. "Óverðtryggð lán eru betri en verðtryggð þegar áföll verða."  Óverðtryggð lán til langs tíma eru yfirleitt með breytilegum vöxtum til skamms tíma í senn.  Slíkir vextir urðu gríðarlega háir 2008-2009 og greiðslubyrði hefði orðið mun meiri en af verðtryggðum jafngreiðslulánum, þar sem verðbætur dreifast yfir allan líftíma lánsins.  Verðtryggðu jafngreiðslulánin voru að mörgu leyti lán í óláni og hafa veitt skjól frekar en hitt.

5. "[Útrásarvíkingur X] á að borga skuldir [hlutafélags Y þar sem X var hluthafi]."  Það kann að teljast siðferðislega æskilegt í ýmsum tilvikum að hluthafar borgi skuldir sem þeir hafa stofnað til í gegn um félög sín.  En, hvort sem mönnum líkar betur eða verr, þá eru hlutafélög þess eðlis skv. hlutafélagalögum að hluthafar bera ekki ábyrgð á skuldum félaganna, umfram hlutafjárframlög sín.  Þetta er lánveitendum fullkunnugt þegar þeir lána hlutafélögum, og á með réttu að endurspeglast í lánskjörum, tryggingakröfum o.s.frv.  Hitt er svo annað mál að stjórnir og stjórnendur hlutafélaga bera margháttaða ábyrgð skv. lögum og liggur refsing við ýmissi háttsemi sem lög tiltaka.

6. "Það á að setja afturvirk lög til að geta refsað [útrásarvíkingi X]". Slíkt er bannað skv. 69. gr. stjórnarskrár Lýðveldisins íslands: "Engum verður gert að sæta refsingu nema hann hafi gerst sekur um háttsemi sem var refsiverð samkvæmt lögum á þeim tíma þegar hún átti sér stað." Ákvæði sama eðlis eru í mannréttindasáttmálum, enda er hér um að ræða eina af meginstoðum lýðræðis og réttarríkis.  Það væri verr af stað farið en heima setið að ætla sér að krukka í þessu.

7. "Við ráðum ekki við Icesave." Jú, sérstaklega ef fyrirvarar Alþingis halda.  Ef okkur ber gæfa til að stjórna efnahagsmálum með skynsamlegum hætti næstu árin, til dæmis með fagmenn eins og Gylfa Magnússon og Má Guðmundsson í brúnni og með aðstoð AGS, þá ráðum við ágætlega við Icesave-greiðslurnar.

8. "Allt er farið í steik og það er eins gott að pakka saman og fara." Vísbendingar í hagtölum eru frekar jákvæðari en svartsýnar spár gerðu ráð fyrir.  Samdráttur landsframleiðslu verður minni en ætlað var á þessu ári, og ekki meiri en víða annars staðar.  Vöruskiptajöfnuður hefur snúist hratt við og er vel jákvæður um þessar mundir. Atvinnuleysi er minna en spáð var.  Búið er að vinna úr Icesave deilunni og verið er að endurreisa bankana.  Umsókn um aðild að ESB er á góðu róli, en stefna á aðild og evru mun veita okkur kærkominn stöðugleika og viðspyrnu.  Og við munum geta lokað stórum hluta fjárlagagatsins með þeirri einföldu aðferð að skattleggja inngreiðslur í lífeyrissjóði í stað útgreiðslna.

Eins og sönnum Íslendingi sæmir, dreg ég rökrétta ályktun: Þetta reddast.



Könnun um Vestdalseyrarmálið.

Mín skoðun á málinu er sú að....

... nei annars, ég ætla að segja ykkur þegar þið hafið kosið!


Getur ekki verið í lagi!

Nokkur félög í íslenska boltanum hafa komið sér upp gerviliðum, þeas öðrum félögum sem rekin eru og stjórnað af móðurklúbbnum.

Þessi lið eru gjarnan í 3. deild og eru vettvangur fyrir leikmenn sem ekki komast í aðalhóp viðkomandi félags.

Að mínu mati þarf að setja þessum liðum takmörk og þá þannig að þau komist aldrei upp úr neðstu deild, eða þá að þau komist aldrei upp í þá deild sem móðurfélagið er í.

Ef seinni kosturinn væri valinn væri einnig hægt að breyta reglum þannig að til dæmis KR tefldi fram liðum í öllum deildum.


mbl.is Afturelding með tvö lið í 2. deild?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að eiga góða æsku daga er mikið lán.

Hverju barni er mikið lán að eiga góða æskudaga.  Að foreldri búi því skjól á heimilinu og leiðbeini því um framkomu og lífsmáta.

Sú leiðbeining er stundum í orðum, en þó oftar og áhrifaríkara í hátterni og lífsstíl.

Fyrir þetta er aldrei fullþakkað. 

 


Hvað varðar BB um þjóðarhag?

Nú nær lágkúrulegur málflutningur Bjarna Benediktsson nýju hæðum.

Hann ákveður nú að reyna að hvítþvo sig af úrlausn ICE save vandans, en mun aldrei geta firrt Sjálfstæðisflokkinn ábyrgð á þessu vandamáli.

Flokkurinn handvaldi kaupendur bankanna, sem fengu þá á vildarkjörum.  

Mikil vonbrigði eru að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki í þessu stóra máli axla ábyrgð á lausn þess sem unnin var þó í samráði við flokkinn.  Flokkurinn skeytir engu um þjóðarhag en stjórnast af því af öðrum sjónarmiðum.


mbl.is Víki verði fyrirvörum hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarfrí og ættarmót

Ég hef verið í útilegu undanfarna daga og nú um helgina á ættarmóti á Húnavöllum í Húnavatnssýslu.

Ættarmótið er afkomenda Finnboga Laxdal og Kapítólu Sveinsdóttur. Sem bjuggu á Seyðisfirði sína búskapartíð í vinalega húsinu að Árstíg 8.

Móðir Finnboga hét Lilja Finnbogadóttir og var ættuð úr Laxárdal í Húnavatnssýslu.

Annars átti Finnbogi ættir til Mjóafjarðar.

Kapítóla var hinsvegar fædd í Loðmundarfirði og á miklar ættarsögu úr Borgarfirði.

Börn þeirra hjóna voru 11 talsins, þrjú eru látin; Sturla, Guðlaug og Kolbrún.

Sveinn, Nanna og Elfa komu ekki til okkar að þessu sinni. 

Voru þau Finnbogi, Sigurður, Hrefna, Lilja og Alda hér með börnum sínum og fjölskyldum, og einnig var fólkið hennar Kolbrúnar hér í vel heppnuðu ættarmóti um helgina.

Hátíðarkvöldverðurinn var í gærkvöld og var það veislumatur fram borinn, og frásagnir og söngatriði flutt. Var góður rómur gerður að þeim.

Ég þakka fyrir mig og sé að greinilega er upplagt að halda ættarmót á Húnavöllum. Hér er aðstaða til slíks með ágætum.


Spennandi fimmtudagur í vændum!

Á næsta fimmtudag verða 3 stór skip í höfninni

á Seyðisfirði á sama tíma.

Norröna, Albatros og Maasdam.

Hér er svo listi um skemmtiferðaskipin sem

hafa komið hingað í sumar.

 Ship

Arrival  Time
 Spirit of Adventure Monday, June 8 08:00 - 14:00
 Clipper Adventurer Saturday, June 20 12:00 - 19:00
 Spirit of Adventure Tuesday, June 23 08:00 - 13:00
 Marco Polo Tuesday, June 30 09:00 - 17:00
 Albatros Friday, July 3 10:00 - 18:00
 Braemer Wednesday, July 8 08:00 - 17:00
 Adriana III Thursday, July 9 12:00 - 18:00
 Kristina Regina Sunday, July 12 13:30 - 18:00
 Delphin Monday, July 13 08:00 - 18:00
 Tahitian Princess Monday July 13 10:00 - 18:00
 Clipper Adventurer Saturday, July 25 08:30 - 20:00
 Spirit of Adventure II (Astoria) Sunday, July 26 07:00 - 17:00
 Delphin Tuesday, August 4 08:30 - 13:00
 Albatros Thursday, August 6 10:00 - 18:00
 Maasdam Thursday, August 6 08:00 - 17:00
 Tahitian Princess Tuesday, August 18 10:00 - 18:00
 Black Watch Sunday, August 23 08:00 - 18:00

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Jón Halldór Guðmundsson

Höfundur

Jón Halldór Guðmundsson
Jón Halldór Guðmundsson
Höfundur er áhugamaður um landsmál og lífið í kringum sig.

Spurt er

Hvaða Austfirðing muntu kjósa á stjórnlagaþing?
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 134715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

- Kvöldljóð

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband