Færsluflokkur: Bloggar
26.10.2009 | 09:49
Þarfar ábendingar tófuvina!
Tófuvinir eru greinilega vakandi og sofandi yfir hagsmunum Íslands í víðara samhengi en aðrir.
![]() |
Hagsmuna tófunnar verði gætt í Icesave-máli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2009 | 18:27
Nýsköpun í atvinnulífi og máli.
Þvættingur og kjaftháttur.
Nú er mikið talað um að við þurfum að örva nýsköpun í atvinnulífinu okkar.
Þegar ný atvinnutækifæri finnast verða gjarnan til ný fyrirtæki. Þessi fyrirtæki þurfa nöfn við hæfi, sem eru lýsandi fyrir starfsemi þeirra og vekja athygli fólks.
Hér eru tvö dæmi um góð nöfn á fyrirtæki:
Þvættingur er gott nafn á þvottahúsi.
Kjaftháttur er gott nafn á tannlæknastofu.
Ekki satt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2009 | 09:51
Gott að vita þetta.
Gott að vita að þessir flokkar vilja alls ekki skattleggja þá sem nýta auðlindir þjóðarinnar.
Sjálfstæðisflokkur og Framsoknarflokkur eru á móti eignaskatti, á móti hátekjuskatti og vilja hafa skatt á fjármagnstekjur lægri en í nokkru örðu landi.
Þeirra áhersla var að lækka skattleysismörk að raungildi.
Þei vildu taka skattana af láglaunafólkinu og meðaltekjum. En standa vörð um þá sem hafa breið bökin. Hlífa hátekjufólki, erlendum stórfyrirtækjum og sérstaklega fjármagnseigendum.
Núna sést að þeir vilja alls ekki skattleggja atvinnureksturinn og alls ekki erlend stórfyrirtæki, sem fá raforku hér á útsöluprís.
![]() |
Gagnrýna Árna fyrir ASÍ-ræðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.10.2009 | 17:01
Knappur afgreiðslutími!
Mörgum hér í bæ þykir afgreiðslutíminn í Landsbankanum og Pósti knappur eftir þessa breytingu.
Afgreiðslutíminn hjá Póstinum dregst saman um 20 klst á viku við þessa breytingu.
Nú verður afgreiðslutíminn á póstafgreiðslu í bænum frá 12.30 til 16.00, sem er vel að merkja sami tími og á Flateyri, Stöðvarfirði, Þingeyri og Vopnafirði.
Kaupstaðir eins og Skagaströnd, Hvammstangi, Patreksfjörður, Fáskrúðsfjörður, Djúpivogur, Blönduós osfrv hafa lengri afgreiðslutíma Póstsins.
![]() |
Pósturinn í samstarf við Landsbankann á Seyðisfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.10.2009 | 16:06
Skin og skúrir.
Það skiptast á skin og skúrir.
Nú er 15 stiga hiti og sólarveður á Seyðisfirði. Ég gekk hér út fyrir skrifstofuna og hitti Milla í Pöntun og Jón Olgu, þar sem þeir voru að vinna við að skipta um þakjárn á Bjólfsgötu 1. Jón hafði orð á því að það hefðu ekki verið margir dagar í sumar betri en þessi. Smiðir kunna að meta veðurblíðuna og láta ekki tilhugsunina um að það frysti aftur eyðileggja fyrir sér góðan vinnudag.
Um helgina var stormur og stórrigning og svo slæmt veður að Paparnir þorðu ekki yfir Fjarðarheiði.
Gústi Guðsmaður hefði á að vera með þeim í för.
En í landsmálum eru líka veðrabrigði. Undanfarið hefur maður gengið undir manns hönd og útmálað ástandið á versta hátt. Reynt að gera öll verk ríkisstjórnar tortryggileg og haldið því fram að ekkert væri gert til að bæta líf þjóðarinnar. Þegar svo áform um aðgerðir eru kynntar, eru síðan margir til að mæla þeim mót sem ákafast og fyrir bragðið eru öll verk erfiðari og tafsamari en þyrfti að vera.
Núna berast fregnir af því að hinar svartsýnustu spár rætist ekki, þvert á móti liggur fyrir að kostnaður við endurreisn bankakerfisins og Icesave sé mun minni en áður var óttast.
Flestir anda léttar og hressast við. Ég bíð spenntur eftir kvöldfréttunum og ætla að heyra hvernig tekst að gera góðar fréttir tortyggilegar svo þjóðinni vaxi nú alls enginn kjarkur og bjartsýni strax.
Ætli fjölmiðlaeigendur og stjórnarandstaða framleiði þunglyndislyf?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.10.2009 | 13:58
Systkynin á Bakka
Mig dreymdi skrýtinn draum í nótt. Mér fannst ég fylgjast með systkynum sem búa í þorpi vestur á landi í húsi sem heiti Bakki.
Þau hétu Gísli, Eiríkur og Helga. Húsið þeirra var gamalt en hafði áður fyrr verið glæsilegasta húsið í þorpinu. Nú var það hins vegar orðið hálfljótt því þau höfðu ekki hirt um neitt viðhald á því árum saman. Þau höfðu engin efni á að kosta viðgerðir á því en sáu það út að þau gætu leigt minna hús fyrir bæturnar sínar.
Þau fluttu því úr gamla húsinu sínu og í annað minna en miklu fallegra hús í staðinn.
Gamla húsið stóð nú autt og engin bæjarprýði.
Ég hrökk upp úr þessu draumarugli og fór að hugsa um að nú á að leggja niður pósthúsið á Seyðisfirði og flytja afgreiðsluna í bankann sem er í leiguhúsnæði. Ekki er það skemmtilegt mál hugsaði ég og reyndi að hugsa um eitthvað skemmtilegra til að sofna aftur.
Ég hugsaði um nöfnin á systkynunum, Gísli, Eiríkur og Helga.
Já, þessi nöfn passa svo vel sem ráðherranöfn, hugsaði ég, Gísli er auðvitað dóms og fangelsismálamráðherra, Eiríkur fjármálaráðherra og Helga Kirkjumálaráðherra, hugsaði ég.
Og svo sofnaði ég aftur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2009 | 12:15
Seyðfirsk getraun dagsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2009 | 08:32
Getraun dagsins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2009 | 11:49
Urgur út af Vestdalseyrinni!
Mikill urgur er í fólki í bænum út af svokölluðu Vestdalseyrarmáli.
Vestdalseyrin á eins og margir vita afar sérstakan sess í huga bæjarbúa. Við hana eru tengdr margar sögur úr fortíð bæjarins og vitað er að þar eru merkar minjar í jörðu.
Nú síðast var málið til umfjöllunar í ferða og menningarnefnd bæjarins og segir í bókun nefndarinnar:
"Ferða- og menningarmálanefnd ítrekar skoðun sína í því hve Vestdalurinn og Vestdalseyrin eru náttúru- og menningarsögulega mikilvægt svæði þar sem vanda þarf vel til verka og ber að vernda eftir fremsta megni. Ferða- og menningarmálanefnd harmar þann farveg sem deilan um nýgert bílastæði er kominn í og skorti á samráði við nefndina í því máli, sérstaklega í ljósi vinnu við skiltagerð og ýmsar aðrar hugmyndir sem nefndin hefur unnið að á síðustu misserum um að gera Vestdalseyrinni og -dalnum þau skil sem því ber."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2009 | 00:00
Tímamót í stjórnmálum á Íslandi.
Nú þessa dagana stöndum við á miklum tímamótum í stjórnmálum á landinu.
Ríkisstjórnin er að leggja línurnar um úrlausn vanda skuldugra heimila.
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa gefið til kynna að bið eftir afgreiðslu IMF á næsta áfanga láns megi ekki bíða öllu lengur og ICESAFE málið megi ekki teja næstu skref okkar til að ná efnahagslegum markmiðum okkar.
Umhverfisráðherra setur virkjunarframkvæmdir í sambandi við Helguvíkurverkefnið í umhverfismat sem heild og það vinnur gegn stöðugleikasáttmálanum.
Seðlabankinn nær ekki að lækka vexti og það eru viss vonbrigði meðal annars fyrir aðila vinnumarkaðarins.
Iðnaðarráherra á viðræður við Alcoa og Norðurþing og ákveðin laun vegna Helguvíkurverkefnisins virðist í sjónmáli.
Ríkisstjórnin leggur línurnar um umsvifamiklar breytingar á stofnunum, ráðuneytum og stjórnsýsluumdæmum, sem virðast vera afar róttækar.
Það er mikið um að vera og ekki ólíklegt að átök verði um ýmis af þessum málum á næstu vikum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Jón Halldór Guðmundsson
Spurt er
Tenglar
Seyðisfjörður
Seyðfirskir tenglar
- Heimasíða Seyðisfjarðarkaupstaðar
- Skaftfell menningarmiðstöð
- Huginn knattspyrnudeild
- Skálanes, náttúru og menningarsetur.
- Hótel Aldan Hótelið sem heillaði Dorrit
- Smyril Line Umboðsaðili ferunnar Norrönu
- Myndasíða Gumma Jóns
- Samfylkingin á Seyðisfirði Kjósum réttlæti
- Seyðisfjarðarskóli Flottur skóli!
- Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
- Gummi í Krabbesholm Guðmundur er í Krabbesholm lýðháskóla
- Þvottatækni Mjög athyglisvert fyrirtæki
Bloggvinir
-
joningic
-
fridabjarna
-
gisgis
-
arnith2
-
egillrunar
-
gbo
-
gummigisla
-
korntop
-
fjardarheidi
-
asgrimurhartmannsson
-
fiskholl
-
larahanna
-
gudrunkatrin
-
fleipur
-
hallibjarna
-
logieinars
-
saxi
-
mjollin
-
hugs
-
holmdish
-
joelsson
-
mosi
-
lionsklubbur-seydisfjardar
-
photo
-
rifssaumur
-
neistinn
-
runirokk
-
skagstrendingur
-
arnthorhelgason
-
emilkr
-
nimbus
-
gutti
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 134631
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar