Hvað varðar BB um þjóðarhag?

Nú nær lágkúrulegur málflutningur Bjarna Benediktsson nýju hæðum.

Hann ákveður nú að reyna að hvítþvo sig af úrlausn ICE save vandans, en mun aldrei geta firrt Sjálfstæðisflokkinn ábyrgð á þessu vandamáli.

Flokkurinn handvaldi kaupendur bankanna, sem fengu þá á vildarkjörum.  

Mikil vonbrigði eru að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki í þessu stóra máli axla ábyrgð á lausn þess sem unnin var þó í samráði við flokkinn.  Flokkurinn skeytir engu um þjóðarhag en stjórnast af því af öðrum sjónarmiðum.


mbl.is Víki verði fyrirvörum hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Hann og hans fjölskylda skarar eld að sinni köku og er nokk sama þótt alemningur svelti.  Þannig hefur það alltaf verið og það hefur ekkert breyst þó svo að hann sé orðinn formaður sjálftöku spillingar flokksins.

Guðmundur Pétursson, 29.8.2009 kl. 15:03

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sammála þér, Jón Halldór. Flokkurinn brást. Þess vegna sagði ég mig úr honum. Og Icesave-foringinn lætur hylla sig óverðugan, fyrir afstöðuleysið í langstærsta réttindamáli þjóðarinnar og uppsker lófatak fyrir hjá klappliði sínu. Þvílíkt ástand á eitt sinn bezta flokki landsins, í tíð Ólafs Thors og Bjarna eldri Benediktssonar.

Jón Valur Jensson, 29.8.2009 kl. 15:03

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þeir hafa ekki verið með gáfulegasta móti undanfarið "silfurskeiðadrengirnin" þeir BB og SDG. Þessi sjáfshólsræða BB er bara í takt við það sem frá honum hefur heyrst undanfarið.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 29.8.2009 kl. 23:26

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hólmfríður, ég hygg að Sigmundur Davíð sé einn sá bráðskarpasti í hópi þingmanna.

Jón Valur Jensson, 30.8.2009 kl. 01:36

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Svo bítur BB, hinn minni,  höfuðið af skömminni þegar hann segir forsetann verða að staðfesta lögin. Hann ætlar forsetanum að taka ábyrgðina sem honum sjálfum brast kjarkur til.

Frá mínum bæjardyrum séð þá á forsetinn ekki annan kost en synja lögunum undirskriftar, í ljósi þess sem á undan er gengið, og vísa þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.8.2009 kl. 17:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Halldór Guðmundsson

Höfundur

Jón Halldór Guðmundsson
Jón Halldór Guðmundsson
Höfundur er áhugamaður um landsmál og lífið í kringum sig.

Spurt er

Hvaða Austfirðing muntu kjósa á stjórnlagaþing?
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 133969

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

- Kvöldljóð

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband