Færsluflokkur: Bloggar

Brilliant mál!!!

Svo má skella einum jarðgöngum til Seyðisfjarðar fyrir afganginn. 

Ekki ætti að skemma að það er arðbær fjárfesting  ; )


mbl.is Allt að 600 störf vegna framkvæmda við Tónlistarhús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólítíkin á lóðaríi, með hroðalegan skjálfta.

Nú er kominn skjálfti í pólítíkina.

Ýmsir ganga um með þingmann í maganum og opinbera ástand sitt og svo er komið að nærri önnur hver frétt á vefmiðlum fjallar um framavonir stjórnmálamanna sem hyggja á þáttöku í prófkjöri.

Ég hef verið eitthvað skrýtinn í maganum undanfarna daga og varla verið mönnum sinnandi (á betur við kvenfólk, þetta orðtæki).  Þetta ástand rann af mér í gær og líður mér mun betur í dag, þannig að ég er bara góður núna.

Hér í þessu kjördæmi hefur hinn valinkunni fjölmiðlamaður Sigmundur Ernir Rúnarsson tilkynnt áhuga sinn á þáttöku í prófkjöri Samfylkingarinnar.  Þóttu mér þessi tíðindi hinar bestu fréttir, en ég hef síðan orðið þess var að stuðningsmönnum annarra flokka finnst þessi afskiptasemi Akureyringsins hinn mesti óþarfi.

Eitt kraftaskáldið brá sér á skeið með þessum líka árangri:

Þú skalt ekkert þenja kjaft

þóðú sért að norðan

Settu upp þitt sjónvarpshaft

og sjóhatt til að borðann.


Helgaruppgjör.

Þá er viðburðarrík helgi að baki.

Föstudagur: Hún hófst hjá mér með því að horfa á fyrsta Idol þátt ársins. Hann var skemmtilegur. Næst var Útsvar á dagskrá. Þetta var frábær þáttur og sigraði Fljótsdalshérað Akureyri í spennandi leik. Þetta eru tvö af skemmtilegustu og bestu liðunum í keppninni og ber ég taugar til beggja, að sjálfsögðu.  Hélt þó meira með vinum mínum af Héraði, sem voru frábær.

Laugardagur: Tippkaffið var gott að vanda á laugardagsmorguninn og restin af deginum fór í afslöppun, göngtúr og rólegheit. Það var Pizza í kvöldmatinn hjá okkur og svo horfðum við á söngvakeppni sjónvarpsins. Eva og Ragnhildur voru að vanda í gelgjukasti og voða voða skemmtilegar,  eða þannig.  Lögin í keppninni voru bara ágæt, en í mínum huga skyggir það mikið á keppnina að svo virðist sem eitthvað annað en mat á hve góð lögin eru hafi ráðið því hvort þau komust í keppnina. Lag sem Einar Bragi sendi inn hefði trúlega rúllað þessu upp og þeir sem vilja heyra geta gert það á saxi.blog.is.

Staða þjóðmála, eða öllu heldur vantraust almennings á stjórnmálamönnum og fleirum endurspeglast greinilega í keppninni. "Is it true?" komst áfram og vann!. 

Sömuleiðis komust áfram; "Easy to fool" og "Lygin ein"!!!

"I think the world of you" og "Hugur minn fylgir þér",  komust hins vegar ekki áfram.

Lagið sem Jóhanna söng komst áfram, og ekki hefur nafnið skemmt fyrir söngkonunni. 

Sunnudagurinn fór svo í fund hjá Kjördæmisráði Samfylkingarinnar.  Miklar umræður urðu um aðferð við að velja framboðslista vegna komandi kosninga.  Fram kom að eindreginn vilji er fyrir því að auka áhrif kjósenda á skipan framboðalista og ályktun var samþykkt sem felur í sér að flokkurinn vill að kjósendur geti raðað á framboðslista um leið og kosið er.  Ákveðið var að efna til opins orófkjörs meðal flokksmanna og stuðningsmanna Samfylkingarinnar í kjördæmi um skipan 8 efstu sæta listans.  Fundurinn var ákaflega kraftmikill og greinilegt er að mikill hugur er í Samfylkingarfólki fyrir komandi kosningar.  Sérlega áberandi er að flokksmenn telja æskilegt að auka hlut kvenna í efstu sætum listans í kjördæminu.  Vonandi er að niðurstaðan úr prófkjörinu verði sterkur listi með jafnréttisyfirbragði í vor.  Það tel ég vænlegt til árangurs í kosningunum. 

Mánudagur.

Nokkru fyrir hádegið fór rafmagnið af mínum vinnustað. Útlit fyrir langvarandi bilun og vegna þess hve öll vinna á skrifstofum er háð tölvum er í raun ekkert hægt að vinna meðan ekkert rafmagn er. Svona erum við háð blessuðu rafmagninu.


Að spila á netinu.

Ég spila stundum á netinu.

Nota til þess vettvanginn bridge base.

Þykist kunna sayc.

Sem er standard.

Hér er slóða á hann.

http://www.swangames.com/main/Duckling/SAYC/sayc.html


Miklar væntingar

Samkvæmt könnun sem hefur verið í gangi hér á síðunni virðist lesendum síðunnar lítast vel á nýju ríkisstjórnina.

Þó líst 21% illa á hana, en 48% afar vel. 5% taka ekki afstöðu en um 25% vilja gefa henni séns.

Að mínu viti eru litlar líkur á að þessi ríkisstjórn geti komið miklu til leiðar og kemur þar margt til. Hún mun ekki starfa nema 80 daga og hefur ekki meirihluta þingsins á bak við sig. Mun því mikil orka fara í að semja við Framsókn um mörg mál.

- Mikla furðu vekur afstaða framsóknarmanna við seðlabanka frumvarpið. Þeir telja að seðlabankastjóri þurfi ekki endilega að vera hámenntaður hagfræðingur, heldur kunni að vera farsælt að velja til starfa stjórnmálamann sem hefur mikla reynslu af stjórn efnahagsmála af stjórnmálavettvangi. Ég hefði haldið að þessi leið væri fullreynd, í bili að minnsta kosti.

En nánar um ríkisstjórnina:

Einnig liggur fyrir að hún kemur lítið að fjárlagagerð og ræður því litlu um breytingar á fjármálum ríkissjóðs.

Það sem hún getur aftur á móti gert og verður að gera er að ganga af krafti í 3 mál. 1. Endurreisa traust á gjaldmiðlinum seðlabankanum og fjármálum landsins inn á við og þó einkum út á við.  2.  Halda atvinnulífinu í gangi eins og kostur er.  3.  Bjarga heimilum landsins frá kollsteypu.

Almennt virðist hún ganga rösklega í þessi verk.

Minni á nýja könnun.


Vonbrigði

Ég hefði talið að æskilegt væri að snarlækka vexti mjög fljótlega.
mbl.is Peningamálastefnu ekki breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð einn af 25. "Time will tell".

Rakst á grein á Eyjunni. Hún fjallar um frétt í Time:

"Tímaritið Time hefur sett Davíð Oddsson seðlabankastjóra á 25 manna lista yfir þá sem taldir eru eiga mesta sök á efnahagshruninu.

Greinin er sú mest lesna á vef tímaritsins sem stendur.

Í umfjöllun Time segir: “Í þá tvo áratugi sem Davíð Oddsson gegndi embætti, fyrst sem forsætisráðherra Íslands og síðar sem seðlabankastjóri, innleiddi hann frjálst markaðshagkerfi, einkavæddi þrjá helstu banka landsins, fleytti gjaldmiðlinum og hóf gullaldarskeið hins frjálsa framtaks. Úps! Í staðinn er Ísland orðið að skólabókardæmi um hagkerfi sem bræðir úr sér: Bankarnir þrír sem voru skuldsettir í botn eru gjaldþrota, þjóðarframleiðslan gæti fallið um 10% á þessu ári og AGS er kominn til aðstoðar eftir að gjaldmiðillinn missti helming verðgildisins. Góð tilraun.”

Á vef Time geta lesendur raðað mönnunum á listann samkvæmt samkvæmt eigin mat á ábyrgð hvers þeirra. Sem stendur er Dick Fuld, fyrrverandi forstjóri Lehman Brothers, efstur á listanum og þannig talinn bera mesta ábyrgð á því hvernig komið sé.

Davíð er í 19. sæti listans, næstur á fyrrverandi seðlabankastjóra og fjármálaráðherra bandaríkjanna, þeim Alan Greenspan og Henry Paulson.

Davíð er einn þriggja “útlendinga” á lista Time. Hinir eru Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, og Fred Goodwin, fyrrverandi bankastjóri Royal Bank of Scotland."

Hvort þetta er allt rétt verður tíminn að leiða í ljós.

 


Kreppuráðstafanir á Seyðisfirði! 67% hækkun ruslskatts!

Bæjarstjórn Seyðisfjarðar vinnur nú að því að rétta við fjárhag sveitarfélagsins.  Nokkur umræða hefur verið um að bjóða út ýmsar verklegar framkvæmdir og þjónustu fyrir sveitarfélagið. Slíkt er alls ekki hagkvæmt í öllum tilvikum og hefur nú alfarið verið horfið frá slíkum hugmyndum.

Sorphirðugjald er nú í ár hækkað um 67% milli ára og munar um minna. Gjaldið er þá komið í 25.000 á íbúð en var 15.000 árið 2008.

Fyrir fundi bæjarstjórnar liggur tillaga um sölu á dráttarbraut bæjarins.  Mannvirki þetta var byggt sem hafnarmannvirki á sínum tíma og var það byggt fyrir ríkisframlag að miklu leyti.  Hefur dráttarbrautin verið auglýst til sölu og barst eitt tilboð.  Nokkur óánægja er meðal bæjarbúa með þessar söluhugmyndir og telja ýmsir að nær væri að bæjarfélagið ætti áfram þetta mannvirki um sinn, og notaði eignarhald sitt á dráttarbrautinni til að stuðla að atvinnusköpun í þjónustu við skip og báta.

 


Gervigreind rannsökuð.

Risastyrkur: Háskólinn í Reykjavík fær 300 milljóna ESB-styrk til gervigreindarrannsókna

Frábært tækifæri fyrir Háskólann í Reykjavík.

Ég tel að rétt sé að fá aðstöðu á fundarstað Landsfundar Sjálfstæðisfloksins til efnisöflunar og eins grunar mig að ráðlegt sé að ræða við þá sem sáu um svokallaða einkavæðingu íslensku ríkisbankanna til að leita fanga.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Jón Halldór Guðmundsson

Höfundur

Jón Halldór Guðmundsson
Jón Halldór Guðmundsson
Höfundur er áhugamaður um landsmál og lífið í kringum sig.

Spurt er

Hvaða Austfirðing muntu kjósa á stjórnlagaþing?
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

- Kvöldljóð

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband