Súpa og samgöngur á ráðstefnu!

Á miðvikudaginn verður haldin á Seyðisfirði ráðstefna um samgöngumál.

Fundurinn er haldinn af Samfylkingunni og verður fundarefnið málefni Seyðisfjarðar, framtíðin og samgöngumál. Fundarstaður er Félagsheimilið Herðubreið.

halka

Frummælendur verða Kjartan Ólafsson sérfræðingur hjá Háskólanum á Akureyri, Kristján Möller samgönguráðherra og einnig verður Einar Már Sigurðarson þingmaður mættur á fundinn.

Ráðstefnan hefst klukkan 18.00 og í fundarhléi verður boðið upp á súpu.

Allir áhugasamir um umræðuefnið eru velkomnir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Hvernig standa jarðgangnamálin?

Kjartan Pétur Sigurðsson, 22.11.2008 kl. 16:05

2 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Þau standa þannig núna að jarðgöng milli Héraðs og Seyðisfjarðar eru ekki á samgönguáætlun.

Vegurinn yfir heiðina liggur í 600 metra hæð yfir sjávarmáli, og er samkvæmt mælingum hættulegasti hluti þjóðvegakerfisins á Íslandi.  Samgöngubætur þola ekki bið og þessi vegur er eina tenging bæjarins við vegakerfið.

Þetta er líka tengibraut Íslands við Evrópu, vegna þess að hingað siglir ferjan Norröna 7-8 mánuði ársins.

Jarðgöng hér eru forsenda sameiningar sveitarfélaga og telja margir að þau séu forsenda þess hvort bygðarlagið lifir eða deyr.

Við erum ekki að tala um 2ja ára kreppu, heldur framtíð byggðarlags, sem alveg má ræða þó ástandið á landsvísu skyggi vissulega á svona umræðuefni.

Jón Halldór Guðmundsson, 22.11.2008 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Halldór Guðmundsson

Höfundur

Jón Halldór Guðmundsson
Jón Halldór Guðmundsson
Höfundur er áhugamaður um landsmál og lífið í kringum sig.

Spurt er

Hvaða Austfirðing muntu kjósa á stjórnlagaþing?
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 134024

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

- Kvöldljóð

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband