8.10.2008 | 10:58
Lausn fjármálakrísunnar í sjónmáli.
Það voru blikur á lofti í gær, en í dag berast fregnir af lausn fjármálavanda íslensku krónunnar.
Seðlabankinn og ríkisstjórnin hafa lagt nótt við dag í leita fjármunum og nú berst hjálp úr óvæntri átt.
Seðlabanka Íslands mun hafa borist bréf frá skrifstofustjóra fjármálaráðuneytis Nígeríu, Rufus Aiygmeni, sem boðið hefur seðlabanka Íslands háar fjárhæðir fyrir að aðstoða hann við færslu fjármuna út úr Nígeríu á bankareikning í Sviss.
Þótt ekki sé þjóðstjórn í Nígeríu segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri að þarna sé tækifæri til þess að auka gjaldeyrisforða Íslendinga án mikillar fyrirhafnar en fjárhæðin sem seðlabanka Íslands er lofað er hátt í 80 milljón bandaríkjadala. Davíð sagði að fyrst þyrfti að ganga frá lausum endum sem meðal annars fælust í greiðslu 100.000 bandaríkjadala á reikning Rufusar til þess að auðvelda honum flutning fjárins. "Rufus lofaði okkur greiðslu ef við greiddum þessar fjármuni núna þannig að við bíðum átekta" sagði Davíð við fréttamann.
Fréttagátt; fleipur.blog.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2008 | 16:46
Brottför hraðað.
Ég var að heyra að nokkrir pólverjar hefðu keypt sér far með ferjunni Norrönu í dag. Brottför hennar er áformuð í kvöld um miðnættið.
Ferjan kom til hafnar á Seyðisfirði rétt um hádegið, í suðaustan slagveðri, hafði sem sagt lens yfir hafið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2008 | 16:38
Guðni með stjörnuleik!
Guðni og Pútín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2008 | 11:23
Á greiðslan að vera í Neðra eða Efra?
Ég heyrði einn góðan í gær. Hann Höskuldur á dekkjaverkstæðinu vill láta breyta heitinu á krónunni. Hún á að heita Neðra. Þá getum við borgað í tveimur gjaldmiðlum: Í Neðra og Í Efra.
En án gamans. Það sem hefur gerst undanfarna daga er að mestu leyti afleiðing af því hvernig við höfum lifað. Viðvarandi neikvæður vöruskiptajöfnuður og skuldasöfnun hlaut að taka enda. Þess vegna féll gengið. Gengið hefur samt fallið mun meira en þessu nemur. Það umfram fall er vegna þess að í fjármálakreppunni sem er á heimsvísu eru menn hræddir við að eiga krónu. Um leið og þeir sjá að hún mun fara upp, þá vilja menn krónu umfram allt annað.
Það sem Seðlabankinn og Ríkisstjórnin þurfa að gera strax er að ákveða hvernig þeir ætla að koma á jafnvægi og búa til áætlun um að koma krónunni á þann stað að evran kosti svona 120.
Það þarf þjóðarsátt um að ná þessum markmiðum og ná niður verðbólgunni sem fyrst. Það þarf þjóðarátak til að við kaupum alltaf íslenskt þegar kostur er.
Það þarf yfirlýsingu um að við ætlum í Evrópusambandið, ef það er hagstætt fyrir okkur, eða yfirlýsingu um einhverja aðra framtíðarsýn og lýsingu á því hvernig við ætlum að ná markmiðum okkar, til lengri tíma. Við þurfum að setja peningana okkar í menntun og fjárfestingu sem skilar betra þjóðfélagi en ekki gamblaravitleysu í úrlöndum eins og þeir sem keyptu ríkisbankana leiddust út í. Þess vegna þarf betri löggjöf um bankastofnanir.
Bloggar | Breytt 5.10.2008 kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2008 | 17:38
Davíð vill þjóðnýta Hlöllann !
Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að Davíð Oddsson vilji þjóðnýta Hlöllabáta. Davíð mun hafa látið þessi orð falla tvisvar í dag, fyrst á fundi með ríkisstjórninni í hádeginu og aftur inn á karlasnyrtingunni í Valhöll. Í ljósi efnahagsástæðna telur Davíð nauðsynlegt að tryggja aðgengi almennings að Hlöllabátum en engar heimildir eru fyrir því að Hlöllabátar eigi í lausafjárerfiðleikum.
Fréttalína: fleipur.blog.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2008 | 10:45
Kemur ekki á óvart.
Íhuguðu að slíta stjórnarsamstarfinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.10.2008 | 09:20
Frábær hugmynd
Ég styð hugmyndina um þjóðstjórn.
Hún á að vera skipuð mönnum úr öllum flokkum og einnig er æskileg að aðilar vinnumarkaðarins, fjármálalífs og Seðlabankans og Háskólasamfélagsins eigi þar fulltrúa:
1. Forsætisráðherra. Jón Ásgeir Jóhannesson.
2. Fjármálaráðherra. Geir Haarde.
3. Utanríkisráðherra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
4. Heilbrigðis og tryggingaráðherra. Katrín Jakobsdóttir.
5. Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra. Einar Kristinn Guðfinnsson.
6. Umhverfisráðherra. Guðni Ágústsson.
7. Iðnaðarráðherra. Kristinn Gunnarsson.
8. Samgöngumálaráðherra. Kristján Möller.
9. Dómsmálaráðherra. Atli Gíslason.
10. Mennta og Íþróttamálaráðherra. ?
11. Félagsmálaráðherra. Jóhanna Sigurðardóttir.
12. Viðskipta og bankamálaráðherra. Björgvin Sigurðarson.
13. Kirkjumálaráðherra. Davíð Odsson.
Seðlabankastjóri viðrar hugmynd um þjóðstjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.9.2008 | 10:35
Stórfrétt?
Kannski ekki stærsta málið í fréttunum þessa vikuna, kannski ekki.
Könnun um samgöngur á þesari síðu.
40 bílar á gangstéttinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.9.2008 | 10:31
Vanbúið vegakerfi
Þessi vegur er ófullnægjandi og þolir ekki þenna umferðarþunga.
Sjá könnun um samgöngumál á síðunni hér.
Minni hraði yki hættu á framúrakstri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.9.2008 | 18:50
Fallegt gengi!
Gengi íslensku krónunnar féll enn í dag og hefur aldrei verið lægra.
Krónan er fall-legur gjaldmiðill.
Ef við lítum á þetta frá öðrum bæjardyrum sjáum við að gengið er líka fallegt frá stærðfræðilegu sjónarmiði.
Evran er í 144. (12 í öðru)
Dollar er 100. (10 í öðru).
Yen er 1. (1 í öðru).
Vissulega fallegar tölur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Jón Halldór Guðmundsson
Spurt er
Tenglar
Seyðisfjörður
Seyðfirskir tenglar
- Heimasíða Seyðisfjarðarkaupstaðar
- Skaftfell menningarmiðstöð
- Huginn knattspyrnudeild
- Skálanes, náttúru og menningarsetur.
- Hótel Aldan Hótelið sem heillaði Dorrit
- Smyril Line Umboðsaðili ferunnar Norrönu
- Myndasíða Gumma Jóns
- Samfylkingin á Seyðisfirði Kjósum réttlæti
- Seyðisfjarðarskóli Flottur skóli!
- Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
- Gummi í Krabbesholm Guðmundur er í Krabbesholm lýðháskóla
- Þvottatækni Mjög athyglisvert fyrirtæki
Bloggvinir
- joningic
- fridabjarna
- gisgis
- arnith2
- egillrunar
- gbo
- gummigisla
- korntop
- fjardarheidi
- asgrimurhartmannsson
- fiskholl
- larahanna
- gudrunkatrin
- fleipur
- hallibjarna
- logieinars
- saxi
- mjollin
- hugs
- holmdish
- joelsson
- mosi
- lionsklubbur-seydisfjardar
- photo
- rifssaumur
- neistinn
- runirokk
- skagstrendingur
- arnthorhelgason
- emilkr
- nimbus
- gutti
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar