15.12.2008 | 12:11
Nýr tónn hjá Þorgerði.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir í viðtali við norska blaðið Klassekampen að Íslendingar eigi engra annarra kosta völ í efnahagskreppunni en að ganga í Evrópusambandið.
Þorgerður spáir því og að sjálfstæðismenn muni samþykkja umsókn um aðild á komandi landsfundi þó með fyrirvara um sjávarútvegsmál. Umsókn gæti farið til Brussel á fyrri hluta næsta árs.
Og varaformaðurinn hefur ekki trú á að flokkurinn klofni þótt tekist verði á um tvö grundvallarsjónarmið á landsfundinum. Þar bendir hún á að norski Verkamannaflokkurinn hefur ekki klofnað þótt skiptar skoðanir hafi verði í flokknum um Evrópusambanið í tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum.
Í Noregi er það samningsbundið með stjórnarflokkunum að ræða ekki Evrópusambandsaðild. Jens Stoltenberg, forsætisráðherra, hefur lýst því yfir að fyrst verði að liggja fyrir hvernig samning Íslendingar hugsanlega fái í Brussel áður en Norðmenn meti afstöðuna til ESB að nýju.
Í Noregi ríkir einkum óvissa um hvort samningurinn um evrópska efnahagssvæðið stendur óbreyttur ef Íslendingar ganga í ESB. Þá yrðu aðeins Noregur og Licthenstein eftir í EES. Skoðanakannanir í Noregi benda til að andstaðan við ESB sé meiri nú en oft áður eða yfir 60% landsmanna á móti aðild.
Bloggar | Breytt 16.12.2008 kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.12.2008 | 12:09
Glitnir óskar okkur góðs gengis í lok næsta árs.
Spá hraðri stýrivaxtalækkun
Stýrivextir Seðlabankans verða 18% fram í mars á næsta ári en verða orðnir 7% í lok næsta árs, samkvæmt nýrri spá greiningar Glitnis. Bankinn spáir því jafnframt að stöðugleiki náist á gjaldeyrismakraði og að í lok næsta árs verði evran í 120 krónum og dollarinn í 85 krónum.
Þó er tekið fram að gengisspár séu háðar mjög mikilli óvissu við núverandi aðstæður banka- og gjaldeyriskreppu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2008 | 00:27
Viðburðir á Seyðisfirði milli jóla og nýárs.
Helstu viðburðir á Seyðisfirði milli hátíðanna eru:
Laugardaginn 27. desember kl. 15-17.00 er hinn árlegi jólatrésdansleikur Lionsklúbbs Seyðisfjarðar.
Unga kynslóðin lætur sig ekki vanta á þessa klassísku skemmtun, þar sem von er á jólasveinum og hinir eldri gæða sér á kaffisopa og kökubita. Dansað er í kringum jólatréð í Herðubreið og allir bæjarbúar og gestir þeirra hjartanlega velkomnir.
Aðgangseyrir er sem fyrr 500 kr.
Á sunnudaginn 28. desember er svo hið árlega firmamót Hugins í knattspyrnu innanhúss. Tilhögun og tímasetning verður örugglega betur auglýst þegar nær dregur.
Mánudaginn 29. desember er svo hið árlega jólamót í bridge, sem er aðalmótið hér í bæ. Spilaður er tvímenningur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Mótið hefst kl. 18.00 og þattökugjald er 2.000 á parið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2008 | 00:07
Seyðisfjarðarbíó.
Hér á Seyðisfirði er nú starfrækt bíó, sem nefnist vel að merkja Seyðisfjarðarbíó.
Stefna bíósins er að sýna bæði barna myndir og fullorðins myndir og eru með 6-8 sýningar í mánuði.
Þó mun meira núna í desember. Næstu sýningar eru:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.12.2008 | 18:11
Á Kanarí?
Fundu fornan mannsheila frá járnöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.12.2008 | 15:41
Rúnar Júlíusson kvaddur.
Í dag er kvaddur Rúnar Júlíusson tónlistarmaður.
Af einhverjum ástæðum atvikaðist það svo að barn á Hvammstanga fór að halda með Keflavík og halda upp á Hljóma.
Margir munu sakna Rúnars og minnast hans með kærleika.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.12.2008 | 18:23
Er Seyðisfjörður umhverfisvænn?
Margir segja að Seyðisfjörður sé fallegur bær. Hér sé fallegt umhverfi.
En er Seyðisfjörður umhverfisvænn bær. Er umhverfismálum vel sinnt hér í bænum?
Já, að sumu leyti, tel ég svo vera. Nokkur fyrirtæki ganga mjög vel um og flokka úrgang til endurvinnslu. Einstaklingur hér í bæ safnaði um hríð pappír til að endurnýta hann. Sveitarfélagið rekur stóran vinnuflokk sem vinnur á sumrin við að slá gras, týna rusl og flleira. Flestir íbúar hirða vel um hús sín og lóðir. Þannig að margt er vel gert í þessum málaflokki.
Mynd: Ég viss um Ólafur bæjarstjóri vildi standa í sporum Villa borgarstjóra.
Sorpmálin eru hins vegar aftarlega á þróunarskeiði. Sáralítið er um sorpflokkun heimilssorps og mig grunar að með átaki mætti vel fá marga bæjarbúa til að standa betur að þessum málum.
Ég er að horfa í eigin barm þegar ég segi þetta, en ekki bara að benda á einhvern annan. En best væri að frumkvæðið kæmi frá bæjarfélaginu og þá væri eðlilegast að það kæmi frá þeirri nefnd bæjarins sem fer með þessi mál.
Hins vegar skilst mér að flestar nefndir bæjarkerfisins séu óvirkar og mikið áhugaleysi ríkjandi meðal þess ágæta fólks sem þar situr. Pólítisk virkni hefur aukist á höfuðborgarsvæðinu nú í kreppunni og ganga menn þar um torg og heimta kosningar. Við hins vegar erum, að mér finnst alltof dauf og látum lítið frá okkur heyra.
En aftur að umhverfismálunum:
Á því sviði geta skapast störf og verðmæti.
Ég minntist áðan á móttöku á pappír til endurvinnslu. Ég heyrði hugmynd fleygt hér í bænum um daginn að þennan pappír mætti nýta til að búa til úr honum líkkistur. Umherfisvænar líkkistur.
Lífrænn úrgangur ætti allur að fara í moltugerð, því að hörgull er á góðri mold hér í bænum, eins og kunnugt er.
Stór hluti almenns heimilssorps gæti farið í annað en beina urðun og það eitt sparar okkur mikinn kostnað.
Það mælir allt með því að sinna þessum málum betur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.12.2008 | 02:20
Jólaskreytingar setja svip á bæinn okkar!
Það er gaman að sjá hve fallega skreyttur bærinn okkar er orðinn.
Í tilefni af því birtist hér skoðunarkönnun um fallegustu jólaskreytinguna á einstöku húsi á Seyðisfirði.
Endilega takið þátt.
Annað vil ég nefna sem alltaf setur afar fallegan jólasvip á bæinn okkar. Það er jólatréð í Hólmanum. Við búum svo vel að hafa lygnt lón í miðbænum okkar og þess vegna nýtur jólatréð í Hólmanum sín svo vel og speglast fallega í lóninu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
7.12.2008 | 02:15
Flestir vilja afnema verðtryggingu.
Samkvæmt skoðanakönnun sem verið hefur í gangi hér á þessari síðu vilja flestir afnema verðtryggingu lána og taka upp evru.
Samkvæmt hagfræðingum, á borð við Gylfa Zoega er upptaka evru eða inganga í ESB og myntsamstarf við evrópska seðlabankann vænlegustu kostir okkar, eins og nú er komið.
Það er mín trú að kjósendur muni í vaxandi mæli krefja stjórnmálaflokka á borð við Sjálfstæðisflokk og Vinstri græna um þeirra viðhorf í efnahagsmálum. Þau virðast ekki liggja á glámbekk, nema þá helst í Seðlabankanum, í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2008 | 18:57
Litríkur Leedsari í vanda.
Gamli Leedsarinn og kvikmyndahetjan kominn í smá vanda.
Hvað sem um hann má segja er hann litríkur karakter.
Vinnie Jones handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Jón Halldór Guðmundsson
Spurt er
Tenglar
Seyðisfjörður
Seyðfirskir tenglar
- Heimasíða Seyðisfjarðarkaupstaðar
- Skaftfell menningarmiðstöð
- Huginn knattspyrnudeild
- Skálanes, náttúru og menningarsetur.
- Hótel Aldan Hótelið sem heillaði Dorrit
- Smyril Line Umboðsaðili ferunnar Norrönu
- Myndasíða Gumma Jóns
- Samfylkingin á Seyðisfirði Kjósum réttlæti
- Seyðisfjarðarskóli Flottur skóli!
- Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
- Gummi í Krabbesholm Guðmundur er í Krabbesholm lýðháskóla
- Þvottatækni Mjög athyglisvert fyrirtæki
Bloggvinir
- joningic
- fridabjarna
- gisgis
- arnith2
- egillrunar
- gbo
- gummigisla
- korntop
- fjardarheidi
- asgrimurhartmannsson
- fiskholl
- larahanna
- gudrunkatrin
- fleipur
- hallibjarna
- logieinars
- saxi
- mjollin
- hugs
- holmdish
- joelsson
- mosi
- lionsklubbur-seydisfjardar
- photo
- rifssaumur
- neistinn
- runirokk
- skagstrendingur
- arnthorhelgason
- emilkr
- nimbus
- gutti
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar