16.8.2009 | 11:23
Sumarfrí og ættarmót
Ég hef verið í útilegu undanfarna daga og nú um helgina á ættarmóti á Húnavöllum í Húnavatnssýslu.
Ættarmótið er afkomenda Finnboga Laxdal og Kapítólu Sveinsdóttur. Sem bjuggu á Seyðisfirði sína búskapartíð í vinalega húsinu að Árstíg 8.
Móðir Finnboga hét Lilja Finnbogadóttir og var ættuð úr Laxárdal í Húnavatnssýslu.
Annars átti Finnbogi ættir til Mjóafjarðar.
Kapítóla var hinsvegar fædd í Loðmundarfirði og á miklar ættarsögu úr Borgarfirði.
Börn þeirra hjóna voru 11 talsins, þrjú eru látin; Sturla, Guðlaug og Kolbrún.
Sveinn, Nanna og Elfa komu ekki til okkar að þessu sinni.
Voru þau Finnbogi, Sigurður, Hrefna, Lilja og Alda hér með börnum sínum og fjölskyldum, og einnig var fólkið hennar Kolbrúnar hér í vel heppnuðu ættarmóti um helgina.
Hátíðarkvöldverðurinn var í gærkvöld og var það veislumatur fram borinn, og frásagnir og söngatriði flutt. Var góður rómur gerður að þeim.
Ég þakka fyrir mig og sé að greinilega er upplagt að halda ættarmót á Húnavöllum. Hér er aðstaða til slíks með ágætum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.8.2009 | 17:07
Spennandi fimmtudagur í vændum!
Á næsta fimmtudag verða 3 stór skip í höfninni á Seyðisfirði á sama tíma. Norröna, Albatros og Maasdam. Hér er svo listi um skemmtiferðaskipin sem hafa komið hingað í sumar. Ship | Arrival | Time |
Spirit of Adventure | Monday, June 8 | 08:00 - 14:00 |
Clipper Adventurer | Saturday, June 20 | 12:00 - 19:00 |
Spirit of Adventure | Tuesday, June 23 | 08:00 - 13:00 |
Marco Polo | Tuesday, June 30 | 09:00 - 17:00 |
Albatros | Friday, July 3 | 10:00 - 18:00 |
Braemer | Wednesday, July 8 | 08:00 - 17:00 |
Adriana III | Thursday, July 9 | 12:00 - 18:00 |
Kristina Regina | Sunday, July 12 | 13:30 - 18:00 |
Delphin | Monday, July 13 | 08:00 - 18:00 |
Tahitian Princess | Monday July 13 | 10:00 - 18:00 |
Clipper Adventurer | Saturday, July 25 | 08:30 - 20:00 |
Spirit of Adventure II (Astoria) | Sunday, July 26 | 07:00 - 17:00 |
Delphin | Tuesday, August 4 | 08:30 - 13:00 |
Albatros | Thursday, August 6 | 10:00 - 18:00 |
Maasdam | Thursday, August 6 | 08:00 - 17:00 |
Tahitian Princess | Tuesday, August 18 | 10:00 - 18:00 |
Black Watch | Sunday, August 23 | 08:00 - 18:00 |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2009 | 13:09
Minnsta útihátíðin eystra!
Minnsta útihátíðin að þessu sinni er útihátíðin "Á Sæði, subbufest".
Hátíðin fer fram innan og utandyra á Seyðisfirði og voru tvö kúlutjöld á svæðinu, afsakið á sæðinu í nótt.
Margskonar viðburðir bera uppi dagskrána, til dæmis bjórdrykkja, þar sem skylt er að kyngja bjórnum.
Veitingastaðir bæjarins eru opnir og bjóða gestum sína þjónustu í mat og drykk, eins og nærri má geta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.7.2009 | 08:44
Þjóðerniskennd náttúrufræðingsins...
... er óhögguð.
Blessaður karlinn er í flokki sem kennir sig við vinstri viðhorf og heldur uppi merkjum umhverfismála. Í seinni tíð hefur flokkurinn talið sig sérlegan flokk kvenfrelsis, en ekki minnist ég þess að flokkurinn kenni sig við þjóðerniskennd, þvert á móti vill flokkurinn sýna útlendingum sem hingað koma góðvild og taka virkan þátt í ýmsu alþjóðlegu samstarfi.
Flokkurinn fær nú heldur betur bakstuðning við öll þessi viðhorf með aðild að ESB. Um réttindi launafólks, jafnréttismál, neytendamálefni og ýmis önnur tengd viðfangsefni láta stofnanir ESB til sín taka, eins og kunnugt er. Málefni sem VG bera mjög fyrir brjósti.
En við vitum öll að Hjörleifur er auðvitað fyrst og fremst rómantískur þjóðernissinni í anda Jónasar Hallgrímssonar og þá er auðvitað þessi afstaða félaga hans í flokknum þyrnir í augum.
Hjörleifur vill ekkert vita að meiri hluti kjósenda VG er alls ekki fráhverfur aðildarumsókn, en auðvitað kemur það honum ekkert við. Hjörleifur hefur alltaf verið grandvar maður og sem þingmaður stóð hann ævinlega fast við sína sannfæringu og er slíkt bara virðingarvert. Hitt er auðvitað annar handleggur að þó að heildarhagsmunum landsmanna kunni að vera best borgið innan ESB og með evru, þá truflar slíkt ekki Hjörleif.
Hjörleifur tæpir á, að nú verði stjórnsýslan upptekin við reglugerðasmíð fyrir Brussel valdið. Staðreyndin er sú að stjórnsýslan er þegar upptekin í reglugerðasmíð fyrir Brusselvaldið með aðild sinni að samningi um Evrópskt efnahagssvæði, eins og allir vita.
Hjörlfeifur gagnrýnir Steingrím J. harðlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.7.2009 | 17:14
Alltaf hlýja.
Lítill drengur á leið í heimsókn hjá frænku.
Beggja megin við stéttina breiða sóleyjar úr sér.
Inni er lykt af nýlöguðu kaffi, en börnin vilja frekar nýjar pönnukökur og kalda mjólk.
Hér er alltaf glaðværð og hlýja.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2009 | 00:37
Ég er línuvörður
Ég er línuvörður í fótbolta
löggan í bænum.
Dómari í blaki
og tenniskeppandi.
Eitt sinn fór ég að að ganga og
hitti svo mann.
Hann var í tennis minn keppinauti.
Ég er línuvörður .......
Eitt sinn var ég að labba og
hitti þar mann.
Hann var að stela
og ég greip hann.
Ég er línuvörður...
Eitt sinn var ég í blakhúsi
hitti þar konu
sagði henni að ég væri dómari.
og stattu þig vel.
Ég er línuvörður ..
Eitt sinn var ég á fótbolta
vellinum stóra
já ég var dómari og
öskraði Áfram!
Ég er línuvörður ...
Höfundur Sóley Rún.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.7.2009 | 20:08
Fordæmi Angelu Merkel.
Ég hitti mann á förnum vegi ný nýverið og hann sagði mér frá ágætri hugmynd sem íslensk stjórnvöld gætu ef til vill nýtt sér.
Hún er sú að boða útrásarvíkingana til fundar um það hvernig þeir ætla að bæta það tjón sem þeir hafa að einhverju leyti valdið okkur öllum með sínu ráðslagi.
Ef þeir ekki sjá sér fært að aðstoða okkur við þetta verkefni, verði allar eigur þeirra gerðar upptækar og vegabréf þeirra ógilt.
Nú kann að vanta lagaheimildir til svona aðgerða, en ég get ekki trúað því að ekki sé unnt að setja slík lög, sé á því þörf. Málið er svo aðkallandi. Í öllu falli verði þessi leið skoðuð gaumgæfilega.
Eitthvað svipað þessu gerði Angela Merkel kanslari Þýskalands ekki alls fyrir löngu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2009 | 18:36
Lunga hátíðin.
Þessa dagana stendur yfir listahátíð ungs fólks á Austurlandi, Lunga.
Þetta er tíunda hátíðin af þessu tagi hér á Seyðisfirði.
Hátíðin hefur verið byggð upp undir forystu Aðalheiðar Borgþórsdóttur og margra ungmenna af svæðinu og leiðbeinanda, sem tekið hafa fjörðinn og andann beint í æð.
Þessi hátíð hefur verið kostuð af Seyðisfjarðarkaupstað, Menningarráði Austurlands og fleiri innlendum aðilum.
Einnig hefur hátíðin fengið styrki í formi ungmennaskipta frá EUF á Íslandi.
Tónleikar eru í kvöld og á morgun er uppskeruhátíð það sem unnt er að sjá sýnishorn af starfi allra hópa hátíðarinnar.
Í gærkvöldi var glæsileg hönnunarsýning, þar sem sýningarfólk, frumleg föt, frábær tónlist Ívars Péturs, smekkleg lýsing og mikill fjöldi fólks setti skemmtilegan svip á stóru skemmuna í Strandarsíld.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2009 | 12:08
Sjávarútvegsmálin og ESB.
Mikið er rætt um skuggalegar afleiðingar sjávarútvegsstefnu ESB fyrir Ísland.
Eftirfarandi er samantekt um hana og dæmi síðan hver fyrir sig.
"Miðjarðarhafið í heild, Eystrasalt, Skagerak, Kattegat, eyja Portúgala Madeira, eyjur Spánverja á Atlantshafi Kanarýeyjar og Assoreyjar, Hjaltlandseyjar norður af Skotlandi, ríkið Malta á miðju Miðjarðarhafi, eyjur og lendur Breta og Frakka í Karabískahafinu, Franska - Gínea, jafnvel Færeyjar og Grænland sem eru utan ESB eru með þeim sérstaka hætti sérlausnir Danmerkur sem er aðildarríki ESB. Um öll þessi hafsvæði sem eru vistfræðilega aðskilin Norðursjó eru sniðnar sérstakar lausnir til fiskveiðistjórnunar sem eru sem næst vettvangi í samræmi við nálægðarregluna í höndum heimamanna. Þannig fer t.d. Miðjarðarhafsráð með stjórn fiskveiða í Miðjarðarhafinu.Um slíkt segir ESB einfaldlega að ef kerfið uppfyllir skilyrði um sjálfbærar veiðar og vernd fiskistofna og er það í samræmi við fiskveiðistefnu ESB. Þetta eru ekki kallaðar varanlegar undanþágur eins og menn kalla á hér, heldur telst einfaldlega vera hluti fiskveiðistefnu ESB, sem vel að merkja er miklu meira en bara fiskveiðistjórnun. Þar er líka styrkja og stuðningskerfi, úreldingarkerfi og markaðsstuðningur, sem og kerfi sem greiðir sjómönnum lágmarksþóknun í þeirra vasa ef afli lendir í gúanói þ.e. minna en lágmarksverð fæst fyrir aflann. Hvert ríki sér um gæslu og eftirlit sinnar lögsögu sem undirstrikar að ríkið en ekki ESB á fiskveiðilögsöguna."Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.7.2009 | 08:51
Það held ég ekki.
Staða hennar ætti fremur að styrkjast. Hún gat ekki greitt atkvæði á móti tillögu sem hún var í eðli sínu sammála. Mér finnst hjáseta hennar eðlileg, þar sem hún vildi ekki greiða atkvæði gegn flokksystkinum sínum.
Þegar samningurinn um evrópskt efnahagssvæði var samþykktur á Alþingi vildu ýmsir að hann færi fyrir þjóðaratkvæði, þar sem í honum fælist takmörkun á fullveldi þjóðarinnar. Þessu var hafnað.
Nú vilja margiur af þeim sem höfnuðu þessu að viðræðuheimild fari fyrir þjóðaratkvæði.
Það sjá flestir mótsögnina í þessu.
Það er sitthvað lýðskrum og lýðræði.
Staða Þorgerðar Katrínar veikist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Jón Halldór Guðmundsson
Spurt er
Tenglar
Seyðisfjörður
Seyðfirskir tenglar
- Heimasíða Seyðisfjarðarkaupstaðar
- Skaftfell menningarmiðstöð
- Huginn knattspyrnudeild
- Skálanes, náttúru og menningarsetur.
- Hótel Aldan Hótelið sem heillaði Dorrit
- Smyril Line Umboðsaðili ferunnar Norrönu
- Myndasíða Gumma Jóns
- Samfylkingin á Seyðisfirði Kjósum réttlæti
- Seyðisfjarðarskóli Flottur skóli!
- Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
- Gummi í Krabbesholm Guðmundur er í Krabbesholm lýðháskóla
- Þvottatækni Mjög athyglisvert fyrirtæki
Bloggvinir
- joningic
- fridabjarna
- gisgis
- arnith2
- egillrunar
- gbo
- gummigisla
- korntop
- fjardarheidi
- asgrimurhartmannsson
- fiskholl
- larahanna
- gudrunkatrin
- fleipur
- hallibjarna
- logieinars
- saxi
- mjollin
- hugs
- holmdish
- joelsson
- mosi
- lionsklubbur-seydisfjardar
- photo
- rifssaumur
- neistinn
- runirokk
- skagstrendingur
- arnthorhelgason
- emilkr
- nimbus
- gutti
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.1.): 3
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 134456
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar