17.2.2009 | 23:03
Pólítíkin á lóðaríi, með hroðalegan skjálfta.
Nú er kominn skjálfti í pólítíkina.
Ýmsir ganga um með þingmann í maganum og opinbera ástand sitt og svo er komið að nærri önnur hver frétt á vefmiðlum fjallar um framavonir stjórnmálamanna sem hyggja á þáttöku í prófkjöri.
Ég hef verið eitthvað skrýtinn í maganum undanfarna daga og varla verið mönnum sinnandi (á betur við kvenfólk, þetta orðtæki). Þetta ástand rann af mér í gær og líður mér mun betur í dag, þannig að ég er bara góður núna.
Hér í þessu kjördæmi hefur hinn valinkunni fjölmiðlamaður Sigmundur Ernir Rúnarsson tilkynnt áhuga sinn á þáttöku í prófkjöri Samfylkingarinnar. Þóttu mér þessi tíðindi hinar bestu fréttir, en ég hef síðan orðið þess var að stuðningsmönnum annarra flokka finnst þessi afskiptasemi Akureyringsins hinn mesti óþarfi.
Eitt kraftaskáldið brá sér á skeið með þessum líka árangri:
Þú skalt ekkert þenja kjaft
þóðú sért að norðan
Settu upp þitt sjónvarpshaft
og sjóhatt til að borðann.
Um bloggið
Jón Halldór Guðmundsson
Spurt er
Tenglar
Seyðisfjörður
Seyðfirskir tenglar
- Heimasíða Seyðisfjarðarkaupstaðar
- Skaftfell menningarmiðstöð
- Huginn knattspyrnudeild
- Skálanes, náttúru og menningarsetur.
- Hótel Aldan Hótelið sem heillaði Dorrit
- Smyril Line Umboðsaðili ferunnar Norrönu
- Myndasíða Gumma Jóns
- Samfylkingin á Seyðisfirði Kjósum réttlæti
- Seyðisfjarðarskóli Flottur skóli!
- Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
- Gummi í Krabbesholm Guðmundur er í Krabbesholm lýðháskóla
- Þvottatækni Mjög athyglisvert fyrirtæki
Bloggvinir
- joningic
- fridabjarna
- gisgis
- arnith2
- egillrunar
- gbo
- gummigisla
- korntop
- fjardarheidi
- asgrimurhartmannsson
- fiskholl
- larahanna
- gudrunkatrin
- fleipur
- hallibjarna
- logieinars
- saxi
- mjollin
- hugs
- holmdish
- joelsson
- mosi
- lionsklubbur-seydisfjardar
- photo
- rifssaumur
- neistinn
- runirokk
- skagstrendingur
- arnthorhelgason
- emilkr
- nimbus
- gutti
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 134370
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Simmi á tengingar í aðra flokka og það fer um þá.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 09:00
Ekkert breytis. Nýir menn koma, en þeir verða jafn miklir sauðir og þeir á undan svo sama stefnan verður ennþá.
Ásgrímur Hartmannsson, 18.2.2009 kl. 16:56
Kannski þurfið þið jafnaðarmenn ekki að leita neitt til annarra flokka varðandi frambjóðendur. Þið eigið marga frambærilega frambjóðendur úr eigin röðum. Fólk sem hingað til hefur haldið sig til hlés. Öflugt fólk.
Maður líttu þér nær, eins og þar segir. Alvöru jafnaðarmenn hafa alltaf notið fylgis jafnvel langt utan eigin raða. Engin þörf á utanaðkomandi frambjóðendum.
"Framandi blóð" gæti verið smitað.
Ólafur Vignir Sigurðsson (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 21:12
Já, þeir svitna Gísli!!!
Jón Halldór Guðmundsson, 19.2.2009 kl. 00:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.