21.1.2009 | 17:02
Ófarir í eldhúsinu.
Ég verð að deila með ykkur óförum mínum í eldhúsinu.
Ég fann í frysti gamlar lærissneiðar og notaði hluta af þeim í pottrétt í fyrrakvöld.
Þær litu ekki illa út, en ég vissi að þær höfðu verið afþýddar áður. Notaði þær sem sagt í pottrétt með frosnu grænmeti og setti sósu í dós útá. Sauð hrísgrjón með.
Lyktin í eldhúsniu var alls ekki góð, en ég hélt að það væri bara laukduftið, eða vonaði það.
Þegar matur var borinn á borð, kom í ljós að hann bragðaðist ekki vel, sumir rétt smökkuðu á dýrðinni, en aðrir höfðu enga lyst, lyktin var ekki aðlaðandi.
Niðurstaðan var sú að hita SS pylsur, en kvöldverðinum var hent beint út í tunnu.
Í gærkvöldi ákvað ég að hafa góðan kjötrétt til að bæta úr hinni ókræsilega máltíð í fyrrakvöld.
Ég notaði restina af grillsneiðunum, lagði þær þær í kryddlög, sem samanstóð af extra virgin olífuolíu og svörtum nýmuldum pipar, smá koníaki VSOP, hvítlauksgeira, Worchester sósu og sjávarsalti.
Steikti herlegheitin á vel heitri pönnu með nýskornum sveppum, grænum olífum, smáttskornum sólþurrkuðum tómötum og steinselju.
Við eldunina fann ég eim af dauninum frá kvöldinu á undan, en lét það ekki aftra mér að kæla hvítvín og appelsín með veislumatnum. Hitaði hvítlauksbrauð og ferskt hrásalat með matnum.
Fjöskyldan safnaðist af borðinu og kertaljós var kveikt. Þegar hins vegar maturinn var kominn á borðið og lokinu var lyft af pönnunni kom annað hljóð í strokkinn, eins og sagt er.
Ég fékk mér ristað brauð með osti en hinir í fjölskyldunni fóru á shell og fengu sér hamborgara.
Ég held að ég hendi restinni af grillsneiðunum í ruslið.
Um bloggið
Jón Halldór Guðmundsson
Spurt er
Tenglar
Seyðisfjörður
Seyðfirskir tenglar
- Heimasíða Seyðisfjarðarkaupstaðar
- Skaftfell menningarmiðstöð
- Huginn knattspyrnudeild
- Skálanes, náttúru og menningarsetur.
- Hótel Aldan Hótelið sem heillaði Dorrit
- Smyril Line Umboðsaðili ferunnar Norrönu
- Myndasíða Gumma Jóns
- Samfylkingin á Seyðisfirði Kjósum réttlæti
- Seyðisfjarðarskóli Flottur skóli!
- Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
- Gummi í Krabbesholm Guðmundur er í Krabbesholm lýðháskóla
- Þvottatækni Mjög athyglisvert fyrirtæki
Bloggvinir
-
joningic
-
fridabjarna
-
gisgis
-
arnith2
-
egillrunar
-
gbo
-
gummigisla
-
korntop
-
fjardarheidi
-
asgrimurhartmannsson
-
fiskholl
-
larahanna
-
gudrunkatrin
-
fleipur
-
hallibjarna
-
logieinars
-
saxi
-
mjollin
-
hugs
-
holmdish
-
joelsson
-
mosi
-
lionsklubbur-seydisfjardar
-
photo
-
rifssaumur
-
neistinn
-
runirokk
-
skagstrendingur
-
arnthorhelgason
-
emilkr
-
nimbus
-
gutti
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er alveg hrikalegt að lesa um þessar ófarir þínar. Spurning um að senda á þig smá texta úr samfelldri matarveislu sem ég upplifði í 3ja vikna ferð í Kína fyrir stuttu ... svona til að krydda þetta aðeins :)
Í þeirri ferð fékk ég aldrei í magan fyrr en ég koma aftur til baka og það var þegar ég fékk mér einn stóran Burger King hamborgara :|
Kjartan Pétur Sigurðsson, 21.1.2009 kl. 19:14
ææ
Hólmdís Hjartardóttir, 21.1.2009 kl. 19:32
Það er betra að gæta sín, ég skola ætíð vel sem hefur legið í lofttæmdum í ískápnum einhverja daga
Hólmfríður Bjarnadóttir, 21.1.2009 kl. 19:50
Það sem ég les nú helst út úr þessari frásögn er að þú virðist vera hörku góður kokkur þrátt fyrir allt og heilmikill þverhaus - þrjóskari en ........ Hráefni sem komin er vond lykt af er vont hráefni.
Gísli Blöndal, 21.1.2009 kl. 20:39
Já, þetta er alveg svakalegt!
Og þar sem að ég finn til með nágranna mínum og Lionsfélaga þá er mér það bæði ljúft og skylt að bjóða þér nokkrar kótilettur sem ég á og var búinn að gleyma. Grillaði slatta af þeim fallegt ágúst kvöld síðast liðið haust en heldur þú að ég hafi ekki gleymt 5 lettum á grillinu en sá þær þar enn nú áðan. Átta mig reyndar ekki á því að það liggja þrír snjóttilngar dauðir á pallinum fyrir neðan en reikna með að þeir hafi lent í hreyfli US Airways sjóflugvélar sem flaug yfir fjörðinn í dag. Legg til að þú hafir með allt það meðlæti með sem þú hafðir í báðum réttunum en í Guðs bænum slepptu sjávarsaltinu það er örugglega eitthvað skemmt enda það eina sem kemur til greina, notaðir þú ekki sjávarsaltið í bæði skiptin?
PS: Magga Vera var örlítið föl á fundinum í dag, drakk hún nokkuð hvítvínið á meðan þú skolaðir appelsíninu niður með ostasneiðinni.
Ómar B., 21.1.2009 kl. 21:16
Úll la la - ömurlegt að vera búinn að eyða svona mikilli vinnu í matseldina og svo bara allir í Shell - en þú ert greinilega finn kokkur - þarft bara að passa að nota ekki margþýðar gamalrollur.
Jónína Rós Guðmundsdóttir, 21.1.2009 kl. 22:23
Bróðir minn vann hjá nóatúni einu sinni. Hann sagði mér, að ef ég vildi gott kjöt, værir ráðið að kaupa annars flokks nautalundir. Fyrsta flokks lundir voru geymdar von úr viti, þýddar og frystar sitt á hvað, og gátu verið algjör vibbi.
Annars flokks var alltaf nýtt kjöt.
Boðskapurinn: ef þ´ert búinn að þýða það, borðaðu það. Það verður annars alveg vonlaust á eftir.
Ásgrímur Hartmannsson, 21.1.2009 kl. 22:48
Já sællll...........
þetta sannar kenningu okkar Guðna Ágústssonar: Konur eiga heima "bak við" eldavélaina, ekki við karlpeningurinn! Okkur liggur betur, að "sýsla! við eitthvað annað........
Magnús Jónasson, 22.1.2009 kl. 00:16
Já sællll...........
þetta sannar kenningu okkar Guðna Ágústssonar: Konur eiga heima "bak við" eldavélina, ekki við karlpeningurinn! Okkur liggur betur, að "sýsla! við eitthvað annað........ :)
Magnús Jónasson, 22.1.2009 kl. 00:18
Ekki man ég eftir þessum hamförum á heimilinu enda skilst mér eftir að vera búin að ganga á bóndann hvenær þetta hafi verið og þá kemur í ljós að þetta er hans húmor eða lýsing á stjórnarsamstarfinu. Semsagt dæmisaga. hehe....
Margrét Vera (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 18:36
ha ha ha ha Góður
Sissú (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 17:58
Þú varst heppinn að drepa engan.
Lionsklúbbur Seyðisfjarðar, 28.1.2009 kl. 21:16
P.s. Hvenær átt þú að elda næst í klúbbnum okkar?
Lionsklúbbur Seyðisfjarðar, 28.1.2009 kl. 21:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.