17.1.2008 | 09:39
Verð fyrir vatnsréttindi.
Allt bendir til að verð fyrir vatnsréttindi muni hækka í framtíðinni.
Undanfarna daga hafa fréttir borist af málarekstri landeigeda á Fljótsdalshéraði vegna greiðslna fyrir vatnsréttindi vegna Kárahnjúkavirkjunar. Úrskurðarnefnd kvað upp úr með tilteknar bætur vegna eignarnámsbóta fyrir vatnsréttindi í sumar. Margir landeigendur hafa síðan ákveðið að sætta sig ekki við þá niðurstöðu, heldur sækja rétt sinn fyrir dómstólum.
Það verður forvitnilegt að fylgjast með þessu máli, en rætt er um að greiðslur fyrir vatnsréttindi séu mun hærri í Evrópu, eins og til dæmis Noregi en hér hefur verið.
Með markaðsvæðingu og auknu frjálsræði í orkugeiranum er þetta að breytast hér, þó að við höfum ekki beinan aðgang að orkumarkaðnum í Evrópu, eins og Norðmenn, af landfræðilegum ástæðum.
Það er tilkoma smávirkjana, meðal annars, sem á sinn átt í að setja önnur viðmið í verði á vatnsréttindum hér.
Í viðtali við Jón Jónsson lögmann landeigenda vísaði hann til þess verðs sem Seyðisfjarðarkaupstaður fær fyrir vatnsréttindi Fjarðarárvirkjunar. Sú upphæð, sem er 10% af heildartekjum virkjunarinnar er sú lang hæsta sem heyrst hefur um fyrir vatnsréttindi á Íslandi.
Manni verður hugsað til málflutnings ýmissa spekinga fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar, en þá sagði forystumaður sjálfstæðisflokksins að það mætti alls ekki gefa helstu auðlind bæjarins fyrir smáaura.
Það er ánægjulegur viðsnúningur orðinn á skoðunum hans, en í ávarpi sínu nú um áramótin sagði hann að við myndum hafa mikinn hag af virjuninni.
Nánar tilgreint sagði hann: (Heimild; seydisfjordur.is)
Atvinnuástand á staðnum hefur verið gott og vegur þar talsvert, miklar framkvæmdir við virkjun Fjarðarár. Þær framkvæmdir halda áfram af fullum krafti á næsta ári og er gaman að fylgjast með því hvernig þessu verki miðar nú fram. Virkjunin er stórt hagsmunamál fyrir okkur Seyðfirðinga og mín trú er sú að við eigum eftir að hafa mikinn hag af þessari virkjun þegar fram líða stundir.
Sem sagt. Eftir kosningar varð svo virkjunin bara hið besta mál.
Um bloggið
Jón Halldór Guðmundsson
Spurt er
Tenglar
Seyðisfjörður
Seyðfirskir tenglar
- Heimasíða Seyðisfjarðarkaupstaðar
- Skaftfell menningarmiðstöð
- Huginn knattspyrnudeild
- Skálanes, náttúru og menningarsetur.
- Hótel Aldan Hótelið sem heillaði Dorrit
- Smyril Line Umboðsaðili ferunnar Norrönu
- Myndasíða Gumma Jóns
- Samfylkingin á Seyðisfirði Kjósum réttlæti
- Seyðisfjarðarskóli Flottur skóli!
- Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
- Gummi í Krabbesholm Guðmundur er í Krabbesholm lýðháskóla
- Þvottatækni Mjög athyglisvert fyrirtæki
Bloggvinir
- joningic
- fridabjarna
- gisgis
- arnith2
- egillrunar
- gbo
- gummigisla
- korntop
- fjardarheidi
- asgrimurhartmannsson
- fiskholl
- larahanna
- gudrunkatrin
- fleipur
- hallibjarna
- logieinars
- saxi
- mjollin
- hugs
- holmdish
- joelsson
- mosi
- lionsklubbur-seydisfjardar
- photo
- rifssaumur
- neistinn
- runirokk
- skagstrendingur
- arnthorhelgason
- emilkr
- nimbus
- gutti
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.