Færsluflokkur: Bloggar
12.7.2010 | 17:29
Hvaða heimili?
Óráðlegt að hækka skatta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.7.2010 | 11:20
vísa
Mikið á sá bóndi bágt,
sem baslar af gömlum vana.
Betra væri að leggjast lágt
og láta við sig stjana.
G. Jónsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2010 | 13:51
Þjóðin á rétt á að kjósa um ESB!
Og til unnt sé að kjósa verðum við að vita hvað felst í aðild að ESB. Óttinn við að vita hvað er í boði er mér illskiljanlegur. Þess vegna tek ég undir framsóknarmönnum.
Í ályktun framsóknarmanna segir: "Að neita þjóðinni um þann rétt að sjá hvað getur falist í aðild og hvað ekki, er afturhvarf til þjóðfélags pólitískrar þröngsýni, afturhalds og sérhagsmuna."
Ungir framsóknarmenn vilja ESB viðræður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.6.2010 | 18:26
Hefjum umræðu um réttlæti í okkar samfélagi!
Umræðan þarf að vera laus við kreddur og bundin raunverulegum hagsmunum almennings.
Hvaða leiðir eru færar til að gera sem fyrst lífvænlegt að búa í þessu samfélagi fyrir hinn almenna mann. Ég er að tala um verðlag, húsnæði, velferðakerfi, heilbrigðisþjónustu og námsmöguleika.
Þessir hlutir eiga að skoðast á forsendum okkar. Ekki fjármögnunarfyrirtækja eða vel skipulagðra hagsmunaaðila sem tröllríða umræðunni í drep.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2010 | 00:44
LJóð eftir Dag.
Leyfi mér að lesa ljóð eftir höfuðskáld okkar Dag Sigurðarson. Dagur hittir í mark, eins og örvhent handboltaskytta, sem fær sér sjénever á sunnudögum og leikur sinn handbolt eins og ungur sveitapiltur úr Dölum.
I
Iða af prúðbúnu fólki
litríkum blómum sem berast
með straumnum
Fögur er fjallkonan
níveabrún á hörund
með kolgeitarbros á vör
í blóðrauðu knésíðu pilsi
"I'm awfully sorry for ya
I know
ya haven't focked for months"
II
Ríkisstjórnin úthlutar
bjargránum einsog móðir
sem gefur barni sínu snuð
túttu í staðinn fyrir brjóst:
Ó elsku almúgamaður
Færðu fórn
vegna atvinnuveganna
(vegna braskarans á Snápahæð
Konu hans
lángar í nýjan pels)
Almúgamaður, framvegis
borðar þú færri
kleinur með kaffinu
Sættu þig vinsamlegast
við hlutskipti þitt vegna
atvinnuveganna og haltu
ó elsku almúgamaður
kjafti
III
Pabbi gefur litla
dreingnum sínum blöðru
bláa einsog Esjuna
eða rauða einsog pils
fjallkonunnar
Fögur er fjallkonan
með svarta bauga
undir lífsþreyttum augum
"I'm awfully sorry
Buy me roses won't ya"
Drengurinn gleðst
meðan blaðran er ósprúngin
Fjallkonan hefur reynt
öll fegurðarlyf
nema heilbrigt líf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2010 | 16:55
Lýsandi!
Málefnasamningur undirritaður á Hesteyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2010 | 13:59
Gott skref til að hægt sé að endurskoða vatnalögin!
Ósáttir við þjóðnýtingu vatns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2010 | 15:50
Skuld áhaldahússins.
Í kosningabaráttunni var mikið rætt um skuld áhaldahússins við aðalsjóð Seyðisfjarðarkaupstaðar. Þessi skuld nemur núna 80,3 milljónum og myndaðist árin 2006, 2007, 2008 og 2009.
Áður var tap áhaldahússins jafnað á þær stofnanir sem keypt höfðu þjónustu þess of lágu verði, til að raunverulegur kostnaður við rekstur vatnsveitu til dæmis kæmi fram þar, en ekki á undirstofnun sem í raun er ekki verkefni í sjálfu sér, heldur þjónustudeild við höfn, vatnsveitu, skóla, félagsheimili, fráveitu og svo framvegis.
En af hverju var þessi breyting gerð með nýja frjálshyggjumeirihlutanum?
Sumir hafa getið sér þess til að þetta hafi verið gert til að erfiðara væri að bera saman rekstur aðalsjóðs milli ára. Það sæist ekki eins berlega hvort þessir menn sem töldu fjálglega um slæma stöðu bæjarins fyrr, væru að ná betri árangri en hinir. Ég veit ekkert hver raunveruleg ástæða er. Ein af mögulegum skýringum á þessu háttalega er sú að meirihlutinn hafi haft áform um að einkavæða áhaldahúsið. Það kann að hafa vakað fyrir þeim.
Eina vitræna svarið sem kom frá þeim ágæti mönnum sem reka bæinn okkar var sú að þessi uppsöfnun á tapi breytti ekki heildarniðurstöðu samstæðureiknings. Ég veit að það er augljóslega rétt og gott að hafa það í huga í sjálfu sér.
En einni spurningu í öllu þessi máli er þó enn ósvarað og er hér með enn og aftur lýst eftir svari við henni. Hvernig ætla þeir félagar fjármálastjórinn og endurskoðandi bæjarins að jafna þessa uppsöfnuðu skuld áhaldahúss og annarra sofnana við áhaldahúsið?
Svarið við þessari spurningu óskast birt á leynilegum trúnaðarfundi, en alls ekki á heimasíðu bæjarins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2010 | 12:08
Lýðræði og virkni íbúa.
Mér hefur fundist að á Seyðisfirði séu stjórnhættir með afar gamaldags hætti. Íbúaþing og borgarafundir eru ekki haldnir. Fagnefndum eru í sumum tilvikum ekki hvaddar til samráðs við ákvarðanatöku, fyrr en kannski eftir á.
Þrjú dæmi um afleiðingar:
Frumkvæði í nýsköpun í atvinnulífi er ekki hjá bæjaryfirvöldum, heldur annarsstaðar.
Barátta fyrir sjálfsögðum umbótum, eins og á sviði samganga hefur færst út fyrir vettvang bæjarráðs og bæjarskrifstofunnar.
Afar erfitt er að fá fólk innan hins ráðandi flokks til starfa, fólk hættir gjarnan eftir eitt kjörtímabil. Fólk fær ekki að vera með í ákvarðanatöku og því velur það fremur að sitja heima.
Ég legg til umbætur á heimasíðu bæjarins, sem er reyndar frábær að mjög mörgu leyti. Hins vegar vantar þar inn ansi margt, sem snertir rekstur bæjarfélagsins og mál sem eru í vinnslu í bæjarkerfinu. Þar væri til dæmis nauðsynlegt að hafa fjárhagsáætlun og ársreikninga, eins og gert er hjá mörgum öðrum sveitarfélaögum. Heimasíða sveitarfélags er ekki til þess gerð, fyrst og fremst, að horfa á 30 ára gamlar myndir af danskennslu í Herðubreið. Hún er til að upplýsa bæjarbúa um málefni sveitarfélagsins.
Að lokum nokkur orð um Íbúaþing:
" Eins og margir þekkja er oft hætta á því að dæmigerðir borgarafundir einkennist af formlegum umræðum þar sem fáir taka til máls. Íbúaþing er allt annars konar vettvangur, þar sem skapast lifandi umræða sem allir geta tekið þátt í. Eftir skemmtilegan dag liggja síðan fyrir fjölmargar upplýsingar og verða helstu skilaboð þingsins verða kynnt bæjarbúum og bæjaryfirvöldum sérstaklega.
Bæjarstjórn mun síðan vinna frekar úr skilaboðum þingsins, sem kunna að verða grundvöllur að framtíðarstefnumótun sveitarfélagsins, koma að haldi við endurskoðun aðalskipulags og fleira.
Sagt er að Íbúaþingbyggist á aðferðafræði sem er skilvirk leið til að hafa samráð við íbúa um stefnumótun, skipulag eða önnur viðfangsefni sveitarfélaga. Aðferðin sem notuð er við íbúaþing er kölluð samráðsskipulag, sem er þrautreynd hugmyndafræði.
Hvað er samráðsskipulag?
Samráðsskipulag er aðferð sem beitt er til þess að virkja fólk til ákvarðanatöku. Aðferðin gefur yfirsýn yfir hug íbúa til tiltekins viðfangsefnis á skömmum tíma þar sem íbúum gefst kostur á að hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi. Þannig gefst öllum sem þess óska, jafnt íbúum, fagfólki sem og öðrum hagsmunaaðilum jafnir möguleikar til þess að leggja sitt af mörkum til mótunar skipulags eða tiltekinnar starfsemi sveitarfélags.
Hvað er íbúalýðræði?
Í stuttu máli felst íbúalýðræði í því að bjóða upp á möguleika til að hafa áhrif á umræðu, hvaða verkefni ber að leysa og þá hvernig. Í því felst að auka lýðræði með því að auðvelda íbúum aðgang að stofnunum og ákvarðanaferli í stjórnskipan.
Af hverju ekki að opna stjórnkerfið, hlusta á íbúana? Hvað er að óttast?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.5.2010 | 16:38
Búum til besta bæinn á landinu!
Ég var að kynna mér stefnu Besta flokksins. Þar segir:
"Ég er með í að byggja upp borg sem er gaman að búa í alveg sama hvort þú ert lítill eða stór, gamall eða ungur, fatlaður eða skrýtinn. Borg sem er manneskjuleg og þar sem það er ekki alltaf verið banna manni allt. Borg þar sem maður getur hjólað um, öruggur fyrir bílum og svifryki. Borg þar sem maður getur slakað á með börnunum sínum og gert eitthvað skemmtilegt. Eitthvað annað en bara Ævintýraland í Kringlunni og Boltaland í Ikea. Borg þar sem peningunum er eytt í skemmtilega og skynsama hluti, ekki eitthvað bull."
Ég sé að ef Besti hefði ekki unnið í Reykjaík myndu svona 40% af Reykjvíkingum hafa flutt til Seyðisfjarðar, því að sumu leyti er Seyðisfjörður bær, þar sem maður getur gert fullt af skemmtilegum hlutum, peningunum er helst ekki eytt í bull, nema kannski smá.
En samt. Ég legg til að við hugsum um að stjórna bænum með mannúð og vellíðan fólks sem markmið og búum til enn betri bæ á Seyðisfirði. Ég held að fólkið hér í bæ vilji það í raun. Þó við látum stundum hafa áhrif á okkur og einhver reyni að hræða okkur með einhverju sem skiptir bara engu máli frekar en einhver glansmynd sem er bara grá. Grá.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Jón Halldór Guðmundsson
Spurt er
Tenglar
Seyðisfjörður
Seyðfirskir tenglar
- Heimasíða Seyðisfjarðarkaupstaðar
- Skaftfell menningarmiðstöð
- Huginn knattspyrnudeild
- Skálanes, náttúru og menningarsetur.
- Hótel Aldan Hótelið sem heillaði Dorrit
- Smyril Line Umboðsaðili ferunnar Norrönu
- Myndasíða Gumma Jóns
- Samfylkingin á Seyðisfirði Kjósum réttlæti
- Seyðisfjarðarskóli Flottur skóli!
- Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
- Gummi í Krabbesholm Guðmundur er í Krabbesholm lýðháskóla
- Þvottatækni Mjög athyglisvert fyrirtæki
Bloggvinir
- joningic
- fridabjarna
- gisgis
- arnith2
- egillrunar
- gbo
- gummigisla
- korntop
- fjardarheidi
- asgrimurhartmannsson
- fiskholl
- larahanna
- gudrunkatrin
- fleipur
- hallibjarna
- logieinars
- saxi
- mjollin
- hugs
- holmdish
- joelsson
- mosi
- lionsklubbur-seydisfjardar
- photo
- rifssaumur
- neistinn
- runirokk
- skagstrendingur
- arnthorhelgason
- emilkr
- nimbus
- gutti
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar