21.12.2009 | 18:16
Rauðrófusalat.
150 ml rjómi
100 g (1/2 dós) sýrður rjómi, 18%
svolítill sítrónusafi
e.t.v örlítill hvítur pipar og salt
150 g rauðrófur, skornar í litla teninga
150 g vínber, steinlaus, skorin í helminga
2 græn epli, afhýdd, kjarnhreinsuð og skorin í teninga
2 sellerístönglar, smátt skornir
50 g valhnetur eða pekanhnetur, grófmuldar
Blandaðu saman rjóma og sýrðum rjóma og bragðbættu með sítrónusafa og e.t.v. pipar og salti eftir smekk. Blandaðu rauðrófum, vínberjum, eplum, selleríi og hnetum saman við og bættu e.t.v. svolitlu af leginum úr rauðrófukrukkunni, eftir því hve bleikt þú vilt hafa salatið. Láttu það bíða í kæli nokkra stund, áður en það er borið fram.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2009 | 16:26
Úr einu í annað.
Í dag er skemmstur sólargangur og því tekur daginn að lengja frá og með morgunskímunni í fyrramálið.
Vonandi boðar nýárssólin betri tíma og meiri bjartsýni hjá okkur.
Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að Seyðfirðingar þrái sólina meira en aðrir, því að við sjáum ekki til sólar fyrr en 18. febrúar. Á sumrin er hér mjög oft ótrúlega gott veður, en gallinn við það er hins vegar sá að sólar nýtur ekki á kvöldin, vegna hinna háu fjalla sem skýla okkur. Það er trúlega þess vegna sem við viljum flýta klukkunni. Þá getum við setið í síðdegissól að afloknum vinnudegi.
Undanfarið hefur verið skítaveður hér eystra og um helgina nokkuð eignatjón vegna foks á Seyðisfirði. Nú kófar á heiðinni og er varhugavert að vera þar á ferli, og raunar var árekstur þar, eingöngu vegna kófs á hinni illviðrasömu Fjarðarheiði. Maður þakkar guði fyrir að slys á fólki urðu ekki mikil að þessu sinni.
En ekki dugar að rella um erfiðar samgöngur, heldur horfa á það jákvæða. Nú eru að koma jól og vonandi finna sem flestir frið í sálu sinni og gleðjast yfir ljúfum stundum með sínum nánustu.
Að mörgu er að huga við jólaundirbúninginn og margir fara í búðir að leita fanga. Verður manni ósjálfrátt hugsað til þeirra félaga Georgs og Ólafs Ragnars í því sambandi. Eða þannig?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2009 | 12:31
Sorpmálin á Seyðisfirði.
Sorpmálin á Seyðisfirði hafa lengi verið óhagkvæm og vanþróuð á Seyðisfirði.
Sorphirða fór í útboð fyrir einhverjum áratugum og hefur síðan verið samið við sama verktakann aftur og aftur. Út á það er kannski ekkert að setja, því að hann hefur tækjavætt sinn rekstur og staðið sig vel að flestu leyti.
Á árinu sem er að líða þurfti bæjarstjórnin að tvöfalda sorphirðugjöldin á bæjarbúana vegna stóraukins kostnaðar. Þeir þættir sem höfðu hækkað í sorpmálum voru stórhækkað verð á sorrpokum og svo hærri kostnaður við akstur. Sorpið er urðað í sorpbandalagi við Héraðsmenn og þurfum við að aka því lengri veg, því nú er sorp Mið Austurlands urðað á Þernunesi við utanverðan Reyðarfjörð.
Þess vegna eru það mikil gleðitíðindi að bæjarstjórn ætlar að taka skref í átt til vistvænni vinnubragða við sorphirðu. Stuðlað er að sorpflokkun og móttaka bætt á endurvinnanlegu sorpi.
Plastpokarnir svörtu fá líka að víkja fyrir sorptunnum sem tæmdar verða á tveggja vikna fresti. Með þessu ætti sorpmagn að minnka og kostnaður við umsvifamikinn akstur með sorpið að minnka.
Í mörg horn að er að líta hjá framsæknu sveitarfélagi eins og Seyðisfjörður er að sumu leyti. Annað mál sem fært hefur verið til betri vegar á síðustu árum eru skólpmálin. Búið er að leggja þau í útrás og er skólpinu dælt langt út á fjörð.
Því má með sanni segja að með úrbótum á þessum tveimur sviðum sé Seyðisfjarðarkaupstaður umhverfisvænni bær en áður var.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2009 | 21:24
Niðurstöður í skoðunarkönnun um forsetaembættið. Stórsigur Ólafs Ragnars.
Afar athyglisvert er að virða fyrir sér niðurstöður í skoðunarkönnun um næsta forseta Íslands. Greinilegt er að þjóðin vill pólitískan forseta og er því þessi könnun stórsigur fyrir Ólaf Ragnar Grímsson.
Efst í könnuninni urðu þau Ólína Þorvarðardóttir og Davíð Oddsson.
Næst komu svo Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri og fyrrum þingmaður, Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri og Ólafur H Sigurðsson bæjarstjóri á Seyðisfirði. Þessi útkoma Ólafs bæjarstjóra hlýtur að vera honum afar mikið gleðiefni og hvatning í sínum störfum. En sigurvegari könnunarinnar er samt Ólafur Ragnar sitjandi forseti. Fjórir af efstu fimm í könnuninni eiga sér pólitíska fortíð og er greinilegt að þjóðin hefur það gott álit á störfum Ólafs að mikill meiri hluti hennar velur anna stjórnmálamann sem forseta.
Næst á eftir þessum, eða með 8% fylgi hvort eru þau Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóri og hin geypivinsæla sjónvarpskona Eva María Jónsdóttir.
Þessi höfðu verið nefnd í fjölmörgum spjallþáttum sem fulltúar sem gætu verið einhverskonar sameiningartákn þjóðarinnar. Þau virðast ekki njóta eftirspurnar.
Loks koma án atkvæða Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Davíð Baldursson sóknarprestur. Óumdeildir og farsælir embættismenn vekja enga athygli í þessari könnun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2009 | 18:16
Margþrepa tekjuskattur.
Samkvæmt könnun á þessari síðu eru langflestir á því að taka upp margþrepa tekjuskatt á Íslandi, í svipuðum dúr og gerist annars staðar í vestrænum ríkjum. Næsta mál!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2009 | 08:32
Beiðni til blaðsins.
Það er mikilvægt að það birtist áfram 2-3 fréttir af þessari söfnun á dag á Mbl.is.
Þið sinnið þessari söfnun afar vel.
Um 31 þúsund skora á forseta Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2009 | 17:22
Jólahald á Seyðisfirði.
Nú er aðventan komin vel á veg. Hefðbundnir atburðir hér í bæ rekja hver annan: Aðventuhátíð var í gær í kirkjunni þar sem sýndur var til dæmis helgileikur, Greniskreytingadagur í leikskólanum er haldinn og það er mjög skemmtilegur viðburður sem snýst um að búa til eigin jólaskreytingar og borða piparkökur með kakói. Á föstudaginn var kveikt á jólatré á spítalatúninu og þar voru jólasveinar og lúðrasveit. Það eru haldin jólahlaðborð á öllum veitingastöðum bæjarins, sem eru þrír vel að merkja.
Búið er að kveikja ljós á þessum líka fallega jólatré í Hólmanum. Bæjarstjórinn okkar leggur sem betur fer ekki í að hætta þeim sið, því síðast þegar það var reynt urðu nánast uppþot í bænum. Þetta tré er að vísu minna en oft áður, en ennþá fallegra samt og stendur á fallegasta stað sem hægt er að hugsa sér fyrir jólatré.
Bærinn er líka búinn að skreyta nokkra ljósastaura í bænum með einhverri rauðri halastjörnu. Svona skreytingar þykja tilheyra jólahaldi í öllum þorpum, án þess að ég geti séð að þetta sé sérlega jólalegt. Mér finnst þetta svona flottræfils jólasiður sem er trúlega þannig til kominn að fyrir nokkrum árum þótti því jólalegra sem meira væri prjálið og að því meira sem glysið væri því meira græddu allir kaupmenninrir á því að selja eitthvert ómerkilegt dót og prjál. Tilgangur þessara ljósastauralýsinga væri sem sagt að auka peninginn og selja meira.
Sveitastjórnin á Djúpavogi ákvað í sparnaðarskyni að hafa jólaskreytingar í þorpinu umfangsminni en áður. Þetta finnst mér vera vel til fundið. Það er lítið hátíðlegt að eyða í skreytingar á friðar og kærleikshátíðinni eins og enginn sé morgundagurinn.
Ef við höfum eitthvað lært af áföllum síðustu missera ættum við að hafa lært hófsemi og mannúð. Það er akki allt betra sem kostar meira. Jólaandinn mælist ekki í amperum og kílówattstundum.
Höfum það í huga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.12.2009 | 18:23
Fulleldi Íslands?
Í dag birtist auglýsing frá Sjálfstæðisflokknum í Morgunblaðinu þar sem sagt er að í dag sé "Fulleldi Íslands" fagnað.
Ég hélt í fyrstu að um prentvillu að ræða, en held nú svo sé ef til vill ekki.
Hugsanlega má líta á að Ísland sé eins og gripur sem hefur verið alinn í sláturstærð, eða "fullalinn". Ýmsir hafa benta á að margar samfélagslegir eignir, eins og samvinnufélögin og sparisjóðirnir sé verðlaus, eftir hina hrikalegu útreið markaðshyggjunnar og græðginnar. Mörg heimili séu skuldum vafin og vandséð hvernig unnt er að bjarga þeim sumum. Peningaöflin hafa sem sagt skilið þjóðfélagið á því stigi að erfitt er að verja heimilin og kjör almennings. Einkum þeirra sem minna mega sín.
Ég held að á fulleldisdeginum verðum við að verja sjálfstæði landsins og lífskjör almennings. Ísland verður ekki endurreist með því að byrja aftur á að einblína á gildi fjármagnsins, heldur með jöfnuði og réttlæti. Stöndum vörð um Ísland og látum peningaöflin ekki ná aftur öllum tökum á Ísensku samfélagi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2009 | 10:13
Fjallahringur Seyðisfjarðar.
Nú um helgina, eða nánar tiltekið kl. 17.00 á laugardaginn opnar ein allra merkasta sýning í sögu Skaftfells, en það er sýning Garðars Eymundssonar á Fjallahringnum.
Ég leyfi mér að birta hér afrit af fréttatilkynningu.
Fjallahringur Seyðisfjarðar28.11.09 - 31.01.10 Garðar Eymundsson hefur nú lokið 15 mánaða vinnu við að teikna upp fjallahringinn sem umlykur Seyðisfjörð. Við vinnuna lá hann úti dögum saman til að fanga útlínur fjallanna og rissa svipbrigði þeirra á blað. Teikningarnar vann hann síðan áfram á vinnustofu sinni með blýantinn og augað að vopni. Garðar vann einnig útlínuteikningu af fjallahringnum með örnefnum allra fjalla og tinda, með dyggri aðstoð Vilhjálms Hjálmarssonar frá Brekku í Mjóafirði en Vilhjálmur útbjó einnig örnefnaskrá þar sem staðarháttum er lýst. Þetta yfirgripsmikla verkefni er nú sýnt í Skaftfelli - miðstöð myndlistar á Austurlandi. Það er sannur heiður fyrir Skaftfell að bjóða almenningi á þessa sýningu, en Garðar Eymundsson á stóran þátt í tilurð Skaftfells og verður seint fullþakkað fyrir sinn hlut í stofnun miðstöðvarinnar. Í tengslum við sýninguna hefur verið unnið vandað bókverk þar sem teikningarnar fá að njóta sín. Bókin er gefin út í 100 tölusettum og árituðum eintökum og verður til sölu í Skaftfelli. Sýningarstjórar eru Björn Roth og Finnur Arnar. Sýning Garðars stendur til 31. janúar 2010 og er opin miðvikudaga til sunnudaga frá 13:00 - 17:00. Aðgangur er ókeypis.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.11.2009 | 08:31
Norröna farin.
Nú í morgun rétt fyrir klukkan 8.00 fór Norröna frá Seyðisfirði 12 tímum fyrr en áætlun skipsins mælir um. Er þetta gert vegna veðurútlits á hafinu hér á milli okkar og vina okkar í Færeyjum.
Ferjan mun sigla nú allan veturinn, að undanskildum 4 vikum nú í desember. Þá mun annað skip leysa hana af með þremur ferðum hingað, þannig að metnaður og kraftur einkennir starfsdrift Smyril Line núna. Þess má í framandskoti skjóti inn her að í desember hefur hún verið leigð sem hótelskip í loftslagsráðstefnu í Kaupmannahöfn.
Samkvæmt upplýsingum frá Seyðisfjarðarkaupstað hafa mikil umsvif í kringum ferjuna og skemmtiferðaskip á þessu ári skapað hafnarsjóði auknar tekjur, um leið og önnur umsvif, einkum vegna uppsjávarfiskveiða hafa verið með allra minnsta móti.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Jón Halldór Guðmundsson
Spurt er
Tenglar
Seyðisfjörður
Seyðfirskir tenglar
- Heimasíða Seyðisfjarðarkaupstaðar
- Skaftfell menningarmiðstöð
- Huginn knattspyrnudeild
- Skálanes, náttúru og menningarsetur.
- Hótel Aldan Hótelið sem heillaði Dorrit
- Smyril Line Umboðsaðili ferunnar Norrönu
- Myndasíða Gumma Jóns
- Samfylkingin á Seyðisfirði Kjósum réttlæti
- Seyðisfjarðarskóli Flottur skóli!
- Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
- Gummi í Krabbesholm Guðmundur er í Krabbesholm lýðháskóla
- Þvottatækni Mjög athyglisvert fyrirtæki
Bloggvinir
- joningic
- fridabjarna
- gisgis
- arnith2
- egillrunar
- gbo
- gummigisla
- korntop
- fjardarheidi
- asgrimurhartmannsson
- fiskholl
- larahanna
- gudrunkatrin
- fleipur
- hallibjarna
- logieinars
- saxi
- mjollin
- hugs
- holmdish
- joelsson
- mosi
- lionsklubbur-seydisfjardar
- photo
- rifssaumur
- neistinn
- runirokk
- skagstrendingur
- arnthorhelgason
- emilkr
- nimbus
- gutti
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar