Tíu litlir negrastrákar?

claireUmræðan um útgáfu bókarinnar "Tíu litlir negrastrákar" undanfarna daga er fyrir margra hluta sakir afar merkileg.

Þessi saga var skrifuð á þeim tíma sem negrar þóttu óæðri verur.  Sumir ganga svo langt að segja að þessar bækur hafi verið gerð til að innræta börnum fordóma gegn hörundslituðu fólki.

Ég hef oft hitt menn sem telja að niggarar og arabar séu heimskir og sóðalegir miðað við okkur. Þannig að kynþáttafordómar eru til á meðal okkar.

Hinn víðsýni og fjölfróði ritstjóri bæjarblaðs Seyðfirðinga eyðir leiðara blaðs síns til að benda á að bókin umtalaða sé holl lesning börnum og að hann hafi lært að lesa með því að staglast gegnum bókin og skoða hinar uppfræðandi myndir með.  Sorgleg sóun bleks.

Á dögunum kom fram ný útgáfa af heilagri ritningu, þar sem orðalagi var breytt í einhverjum smáatriðum.  En smáatriðin eru ekki smá,  ef þau snúast um það að ekki megi lesa út úr heilögu orði mismunun kynja.

Þá samþykkti kirkjuþing á Íslandi aukin réttindi samkynhneigðra um að mega staðfesta samvist innan kristins safnaðar. 

Virðing fyrir mannréttindum,  er sem betur fer alltaf að aukast í heiminum,  ekki síst á Íslandi.

Seyðisfjörður hefur lengi verið alþjóðlegur bær að mörgu leyti.  Komur og brottfarir skipa voru lengi vel algengar um höfnina hér og hér hafa útlendingar lengi sett sterkan svið á mannlífið og auðgað það.

Það ætti því að vera okkur sérstakt keppikefli að forðast að vegsama rit sem fjalla af óvirðingu um fólk af tilteknum kynþætti.

Ég gat ekki stillt mig um að hafa mynd af henni Claire Huxtable með greininni.  Þættirnir um þessa fjölskyldu voru svo skemmtilegir.  Einhver hlýr og mannvænn húmor,  sem erfitt er að lýsa.     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Claire Huxtable viðurkenndu það bara hún var svo sæt he he

Einar Bragi Bragason., 1.11.2007 kl. 15:59

2 identicon

Ég er svo sannarlega sammála þér Jón. Við eigum að varast að ala á misrétti í öllum myndum. Ég verð samt að viðurkenna eins og ritsjóri bæjarblaðsins okkar, að ég hef í gegnum tíðina haldið upp á söguna um negrastrákana. Ég hef sungið þetta í hinum ýmsu útgáfum fyrir börn og með börnum. í hitti fyrra fann ég bókina ( gömlu útgáfuna)  í bókasafni leikskólans. Ég varð himin lifandi glöð og fór að lesa og sýna börnunum þessar líku fínu myndir, ég fletti mjög hratt framhjá sumum því mér fannst þær meira en lítið óhugnarlega.

Ég komst að því að þetta er ekki bók fyrir fyrir mjög ung börn. En hins vegar er ég sammála Goddi þetta eru menjar sem við eigum að varðveita. Þetta var samið á öðrum tíma þar sem annar tíðarandi var við líði. Að sumu leiti fins mér umræðan um endurútgáfu bókarinnar vera stormur í vatnsglasi.

Guðrún Katrín Árnadóttir (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 22:25

3 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

það er ekkert að þessari bók

Einar Bragi Bragason., 2.11.2007 kl. 00:27

4 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Einar minn.  Við erum svo ómeðvitaðir um kynþáttafordóma hér að okkur finnst ekkert að þessari bók.

Fordómar eru þannig að manni finnst eðlilegt að líta niður á svertingja, homma, framsóknarmenn, Kr-inga, Púllara, konur, börn, pólverja, múslima og svo framvegis.

Sá sem er mótaður af umhverfi sem er litað af fordómafullu gildismati, finnst hann ekki vera fordómafullur.

Félagsmótun er eitthvað sem kennir okkur gildismat. Til dæmis að taka tillit til náungans.  Félagsmótun getur líka kennt okkur fordómafullt gildismat.

Mér til dæmis finnst ekki eðlilegt að tvær lesbíur ali upp barn sitt og að barnið kalli þær báðar mömmu.  Hins vegar virði ég rétt fólks til að lifa í samræmi við sína kynhneigð og að ég eigi bara ekki rétt á að fordæma sambúð samkynhneigðs fólks.  Ég þarf að temja mér að hugsa af réttlæti, þrátt fyrir að ég sé kannski innst inni fordómafulllur.

Við fáum aldrei þjóðfélag án fordóma ef við byrjum ekki hjá okkur sjálfum og þeim börnum sem okkur er trúað fyrir að ala upp.

Jón Halldór Guðmundsson, 2.11.2007 kl. 13:45

5 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Nei nú finnst mér þú vera með fordóma að líkja Svertingjum við Kr inga þetta eru sko fordómar......svertingjar eiga það alls ekki sklið......

En án gríns er ekki verið að búa til vandamálsem er ekki til......þá er ég að meina í kringum þessa bók........þetta minnir mig mest á eitthvað sálfræði þvaður.........

Einar Bragi Bragason., 3.11.2007 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Halldór Guðmundsson

Höfundur

Jón Halldór Guðmundsson
Jón Halldór Guðmundsson
Höfundur er áhugamaður um landsmál og lífið í kringum sig.

Spurt er

Hvaða Austfirðing muntu kjósa á stjórnlagaþing?
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

- Kvöldljóð

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband